Haraldur lagði ríkasta mann í heimi sem baðst afsökunar og bauð honum áframhaldandi vinnu

Haraldur Þor­leifs­son, Halli, spurði Elon Musk fyrir rúmum sól­ar­hring hvort hann væri enn með vinnu hjá Twitter. Ríkasti maður heims hló að honum, hædd­ist að fötlun hans og efað­ist um vinnu­fram­lag Haraldar. Allt opin­ber­lega í tístum á Twitter. Haraldur setti inn þráð þar sem hann lýsti áhrifum fötl­unar sinnar á getu sína til að starfa af auð­mýkt og kall­aði eftir því að Musk greiddi sér það sem gerðir samn­ingar gerðu ráð fyrir. Næstum 50 milljón manns sáu þráð­inn, erlendir fjöl­miðlar fjöll­uðu um hann og Musk hefur nú beðist afsök­unar.

Haraldur lagði ríkasta mann í heimi sem baðst afsökunar og bauð honum áframhaldandi vinnu

Elon Musk, for­stjóri Twitter og Tesla, bað í gær Harald Þor­leifs­son afsök­unar og sagði hann vera að íhuga að starfa áfram fyrir Twitter. Afsök­un­ar­beiðnin birt­ist í svari við færslu ljós­mynd­ar­ands Daniel Houghton á Twitter rétt fyrir mið­nætti í gær. Houghton hafði sagði frá því að hann hafi unnið með Haraldi og hrós­aði honum hástert fyrir vinnu­semi, hæfi­leika og auð­mýkt. Houghton sagði að það hlyti að byggja á mis­skiln­ingi þegar Musk sagði, í færslu fyrr í gær­dag, að Haraldur hefði í raun ekki gert neitt hjá Twitter. 

„Í kjöl­far ummæla þinna þá hringdi ég mynd­sím­tal í Halla til að átta mig á hvað væri rétt af því sem mér var sagt. Þetta er löng saga. Það er betra að tala við fólk en að eiga sam­skipti við það í gegnum tíst.“

Svo skrif­aði Musk: „Ég vil biðja Harald afsök­unar fyrir að hafa mis­skilið aðstæður hans. Það var byggt á hlutum sem mér voru sagðir en voru ósannir, eða sannir en höfðu enga merk­ingu. Hann er að íhuga að vera áfram hjá Twitter.“

Þar með lauk afar opin­berri deilu Haraldar, mann­eskju árs­ins á Íslandi í fyrra sem seldi fyr­ir­tækið sitt Ueno til Twitter fyrir rúmum tveimur árum og hefur starfað þar síðan, og Elon Musk, rík­asta manns heims. 

Vinn ég enn hjá þér?

Deilan hófst þegar Haraldur kall­aði eftir svörum um hvort hann væri enn starfs­maður Twitter, með því að senda skila­boð á Musk á sam­fé­lags­miðl­inum, en þá voru liðnir níu dagar síðan að aðgengi hans að skjá­borði vinnu­tölvu og tölvu­pósti hafði verið lokað sam­hliða því að greint var frá að 200 manns hefði verið sagt upp hjá Twitter. 

Haraldur Þor­leifs­son fékk í kjöl­farið loks stað­fest að hann starfi ekki lengur hjá Twitter. Þegar hann og Musk náðu loks saman, í tíst­ar­sam­skiptum fyrir allra augum á Twitter, óskaði Haraldur eftir því að Musk myndi greiða honum það sem eftir stæði af samn­ingi hans við fyr­ir­tækið.  „Eða mun @elonmusk, einn rík­asti maður í heimi, reyna að kom­ast undan því að greiða? Fylgist með!!“

Musk hló að honum og setti síðan fram ýmsar færslur þar sem hann hélt því fram að Haraldur hefði ekki sinnt neinu vinnu­fram­lagi síð­ustu mán­uði, hædd­ist að honum fyrir að glíma við fötlun og sagð­ist ekki bera neina virð­ingu fyrir Haraldi.  Þá sagði Musk Harald vera í veg­ferð til að fá stóra summu greidda. 

Haraldur, sem er með með­fæddan vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm sem gerir það að verkum að Har­aldur hefur not­ast við hjóla­stól frá 25 ára aldri og hefur líka dregið úr geti hans til að nota hendur sínar, skrif­aði langan þráð þar sem hann lýsti ástandi sínu og aðstæðum á kurt­eisi­legan og yfir­veg­aðan hátt og end­aði með því að biðja Musk á ný um að standa við gerða samn­inga og gera upp við hann. 

Deilur mann­anna vöktu mikla athygli, enda Musk með 131 milljón fylgj­endur á Twitter. Um þær var fjallað í fjöl­mörgum alþjóð­legum fjöl­miðlum og sam­hliða stórjókst fylgj­enda­fjöldi Haraldar. Þeir eru ný orðnir næstum 178 þús­und. Yfir tíu milljón manns sáu fyrstu færsl­una í þræð­inum sem Haraldur sendi á Musk eftir að sá síð­ar­nefndi hædd­ist að honum. Sem stendur hafa meira en 48 milljón manns séð síð­ari þráð Haraldar.

Seldi fyrirtækið sitt til Twitter og borgaði skatta á Íslandi

Haraldur var eng­inn venju­legur starfs­maður hjá Twitter. Hann seldi fyr­ir­tækið sitt Ueno til sam­fé­lags­miðl­aris­ans fyrir tveimur árum fyrir ótil­greinda upp­hæð og sam­þykkti sam­hliða, líkt og stofn­endur fyr­ir­tækja sem keypt eru gera stundum, að starfa áfram fyrir yfir­töku­fyr­ir­tækið.

Ueno var tækni- og hönn­un­ar­fyr­ir­tækið, stofnað 2014 og hafði áður verið með starf­semi í San Francisco, New York og Los Angeles, auk skrif­stofu í Reykja­vík, og stækkað hratt. Fyr­ir­tækið velti um tveimur millj­örðum króna á árinu 2019 og hafði sinnt verk­efnum fyrir fjöl­mörg stór­fyr­ir­tæki, til dæmis Google, Apple og Facebook, auk AirBnB, Slack, Uber og fjölda ann­arra. Það var rekið í hagn­aði þegar Twitter keypti það og sam­kvæmt umfjöllun erlendra fjöl­miðla, meðal ann­ars The New York Times, end­ur­spegl­að­ist það í þeim samn­ingi sem gerður var við Harald. Þegar Ueno hafi verið keypt hafi Haraldur fengið greiðslu og Twitter þurfi svo að greiða stofn­and­anum út bónusa og kaupa af honum hluta­bréf þegar hann lýkur störfum fyrir fyr­ir­tækið. 

Upphlaup Musk á Twitter í gær, þar sem hann stað­festi upp­sögn Haraldar, hædd­ist að honum og hló, gæti því orðið honum, sem er langstærsti eig­andi Twitter, dýrt. 

Næstum 600 milljónir króna í skatta á einu ári

Til að átta sig á umfang­inu má benda á að Haraldur sagði frá því í færslu á Twitter skömmu eftir söl­una á Uenoi að allir skattar vegna sölu fyr­ir­tæk­is­ins til Twitter yrðu greiddir á Íslandi. Þá fór hann fram á það við Twitter að kaup­verðið yrði greitt sem launa­greiðslur en með því hámark­aði hann þá skatta sem hann borg­aði af söl­unni. Þetta var þvert á alla skatta­ráð­gjöf sem hann fékk. 

Har­aldur sagð­ist hafa tekið þessa ákvörðun þar sem hann hafi fæðst á Íslandi og að for­eldrar hans hafi verið lág­­tekju­­fólk. Auk þess glími hann við alvar­­lega fötl­un. „En þar sem þetta land býður upp á fría skóla og fría heil­brigð­is­­þjón­­ustu þá gat ég ég dafn­að,“ sagði Har­aldur í stöðu­upp­færsl­unni.

Hann fór svo í við­tal í Kast­ljósi og greindi nánar frá þess­ari ákvörð­un. Þar sagði Har­aldur frá því að þegar hann hafi áttað sig á því að mögu­legt væri að greiða skatta af söl­unni hér­lendis þá hafi hann átt tíu sek­úndna sam­tal við eig­in­konu sína „þar sem ég sagði „heyrðu ég var að kom­ast að því að við getum borgað alla skatta á Íslandi, eigum við ekki að gera það? og hún sagði jú.“

Fyrir vikið var Haraldur í öðru sæti á lista yfir launa­hæstu Íslend­ing­ana á árinu 2021. Samkvæmt hátekju­lista Stund­ar­innar, sem nú er hluti af Heim­ild­inni, greiddi hann 592,4 millj­ónir króna í skatta á árinu 2021, sem þýðir að mán­að­ar­laun hans námu að með­al­tali rúmum 102 millj­ónum króna sam­kvæmt greiddu útsvari.

Hátekjufólk á að borga hærri skatta

Í við­tali við annan af fyr­ir­renn­urum Heim­ild­ar­innar sagði Haraldur að eðli­legt væri að hátekju­fólk borgi hærra hlut­fall af tekjum í skatta og að fólk með lægri tekjur beri lægri byrðar. „Það er mik­ill munur á því að borga 40 pró­sent af 100 þús­und­kalli eða 40 pró­sent af milljón. Við þurfum öll að borða, eiga húsa­skjól, kom­ast á milli staða og svo fram­vegis. Allar skerð­ingar á lágum launum skera inn í grunn­þarfir sem við eigum öll rétt á.“

Haraldur var val­inn mann­eskja árs­ins í fyrra víða í íslenskum fjöl­miðlum, meðal ann­ars fyrir að leiða verk­efnið „Römpum upp Ísland“ sem hefur það mark­mið að fjár­magna upp­setn­ingu hjóla­stólara­mpa á alls 1.500 stöðum á Íslandi.

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár