„Til skammar fyrir Samherja,“ segir forsætis­ráðherra

Katrínu Jak­obs­dóttur var „per­sónu­lega mjög brugðið“ yfir mútu­máli Samherja. Hún leggur áherslu á að fram­ferði Samherja verði rann­sakað. Hún treystir Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þrátt fyrir teng­ingar hans við fyr­ir­tækið. Katrín segir að skoðað verði að Vinstri græn skili styrkjum sem flokk­ur­inn fékk frá Samherja.

„Til skammar fyrir Samherja,“ segir forsætis­ráðherra
Segir fram­ferði Samherja minna á fram­ferði nýlendu­herra Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir fram­ferði Samherja í Namibíu vera þeim til skammar. Mynd: Shutterstock

„Gögnin eins og þau eru birt eru mjög slá­andi og ef mála­vextir eru eins og þeir líta út fyrir þá var mér per­sónu­lega mjög brugðið. Ef málið er vaxið með þessum hætti þá er það til skammar fyrir Samherja.“ Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í spurð um við­brögð hennar við upp­ljóstr­unum um mútu­greiðslur Samherja í Namibíu.

Katrín segir að málið sé áhyggju­efni fyrir íslenskt atvinnu­líf almennt og mjög mik­il­vægt að málið verði rann­sakað ofan í kjölin, rétt eins og hafið sé nú þegar.

-Hyggst þú ganga á eftir því að málið verði rann­sakað?

„Við búum auð­vitað í rétt­ar­ríki og hér­aðs­sak­sókn­ari er þegar kom­inn með málið til með­ferðar þannig að það verður rann­sakað. Ég veit líka að skatt­rann­sókn­ar­stjóri er komin með afmörkuð gögn sem teng­ast mál­inu til skoð­unar. Ég lít svo á að okkar opin­bera kerfi sé þannig að virka en aug­ljós­lega þarf að vanda til verka og rann­saka þetta mál ofan í kjöl­inn.“

Segir upplýsingarnar engu breyta um Seðlabankamál Samherja

-Breyta þessar upp­lýs­ingar ein­hverju um sýn þína á mála­ferli Samherja og Seðla­bank­ans, og ákvörðun þína um að upp­lýsa bæri lög­regl­una um meint sam­skipti Seðla­bank­ans við RÚV?

„Sú ákvörðun er óskyld þessu máli og varðar bara lög um Seðla­bank­ann þannig að ég tel ekki að þetta teng­ist. Það mál kom auð­vitað til vegna grein­ar­gerðar banka­ráðs og umsagnar umboðs­manns Alþingis þannig að það mál er bara í sjálf­stæðu ferli.“

„Ég geri bara þá kröfu til íslenskra fyr­ir­tækja, hvort sem þau eru stór eða lítil, að þau fylgi lögum“

-Telur þú að íslensk stjórn­völd hafi með ein­hverjum hætti gengið erinda Samherja með óeðli­legum hætti eða verið of lin við fyr­ir­tækið á ein­hvern hátt, í ljósi gríðar sterkrar stöðu þess í íslensku atvinnu­lífi?

„Ég geri bara þá kröfu til íslenskra fyr­ir­tækja, hvort sem þau eru stór eða lítil, að þau fylgi lögum. Í þessu máli eru íslensk lög algjör­lega skýr. Ég geri líka þá kröfu að íslensk fyr­ir­tæki fylgi lögum í þeim löndum sem þau starfa í. Ef að málið er vaxið með þeim hætti sem það hefur birst í fjöl­miðlum, þá er ljóst að það eru skýr ákvæði í inn­lendum lögum og alþjóð­legum um mútu­greiðslur til opin­berra starfs­manna, og ég lít svo á að það sé ekki í boði að veita neinn afslátt af þeim kröfum sem þar birt­ast gagn­vart neinum.“

Segir stöðu Kristjáns Þórs ekki hafa veikst

Katrín seg­ist hafa heyrt í sínum sam­starfs­mönnum í rík­is­stjórn­inni en þau hafi ekki hist til að ræða málið sér­stak­lega. Það verði þó til umræðu á næsta fundi hennar. Spurð hvort að hún telji að staða Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar vera með ein­hverjum hætti erfið eftir það sem fram hefur komið í umfjöllun Stund­ar­innar og Kveiks, meðal ann­ars um að hann hefði hitt James Hatuikulipi, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og Sacky Shangala á fundi með Þor­steini Má, neitar Katrín því. „Nú kom það fram í þessum gögnum að hann hefði ekki setið þennan fund, hann hefði heilsað þeim og átt við þá eitt­hvað kurt­eis­is­spjall. Ég sé ekki að það sé neitt í þessum gögnum sem bendi til þess að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hafi haft nokkra vit­neskju um þetta mál.“

-Þannig að það veikir ekki með neinum hætti hans stöðu?

„Nei, og ég sé ekki neina ástæðu til ann­ars en að treysta honum áfram.“

-En sú staða, sem þekkt er, að Kristján Þór og Þor­steinn Már séu vinir til margra ára og að Kristján Þór sé fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja, finnst þér það setja Kristján Þór í erf­iða stöðu í þessu máli?

„Það höfum við auð­vitað öll vitað um mjög lengi. Ég hef lagt á það mjög mikla áherslu að við séum alltaf að gera betur þegar við erum að upp­lýsa um okkar hags­muna­tengsl. Þetta eru í sjálfu sér ekki nýjar upp­lýs­ingar.“

-Hefur þú haft sam­band við stjórn­völd í Namibíu eða hyggstu gera það?

„Per­sónu­lega hef ég ekki gert það en ég tel að íslensk yfir­völd, við­eig­andi yfir­völd, muni auð­vitað eiga sam­starf við yfir­völd í þeim löndum sem þetta varðar. Þá er ég að tala um lög­reglu­yf­ir­völd, skatta­yf­ir­völd og önnur slík.“

-En sérðu ástæðu til að hafa sam­band við til að mynda for­seta Namibíu eða aðra stjórn­mála­leið­toga þar?

„Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það en þetta mál mun eðli máls­ins sam­kvæmt kalla á sam­skipti ríkj­anna.“

Kallar á að gerðar verði stjórnarskrárbreytingar

-Finnst þér þessar upp­lýs­ingar með ein­hverjum hætti breyta umræðu um veiði­gjöld, sem meðal ann­ars fóru síð­ast fram í gær í umræðum um fjár­laga­frum­varp, til dæmis í ljósi teng­ingar veiði­gjalda við afkomu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja?

„Ég tel að það hafi verið gott skref að breyta veiði­gjöldum þannig að þau teng­ist afkomu og það sýnir sig auð­vitað núna að ef gild­andi kerfi hefði ekki verið tekið upp þá væru heimtur af veiði­gjöldum um það bil tveir millj­arðar, um það bil helm­ingi minna en gert er ráð fyrir núna. Ég hins vegar segi það að þessi mál, veiði­gjöld, lagaum­hverfi sjáv­ar­út­vegs­ins á Íslandi, ég held að þau séu ekki útrædd, kannski óháð þessu máli. Ég minni á það að mér hefur verið tíð­rætt um það á þessu kjör­tíma­bili að Alþingi ljúki vinnu við ýmsar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, þar á meðal nýtt ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum. Ég vona svo sann­ar­lega að það verði ein af afurðum þessa kjör­tíma­bils.“

-Þá ekki síst í þessu ljósi eða hvað?

„Ja, þetta minnir okkur bara á það hvernig við viljum hugsa um okkar auð­lindir“.

Framferði Samherja minnir á nýlenduherra

-Í sögu­legu sam­hengi hefur Ísland átt í góðum sam­skiptum við Namibíu. Hefur þú áhyggjur af því að þetta geti haft nei­kvæð áhrif á sam­skipti ríkj­anna tveggja?

„Það vona ég svo sann­ar­lega ekki. Við höfum átt í mjög góðu sam­starfi, til dæmis á sviði land­græðslu. Auðvitað er það mjög dap­ur­legt að land þar sem Ísland hefur verið að sinna þró­un­ar­sam­vinnu, að þegar því ljúki, þá taki þetta við.“

„Auðvitað minnir þetta mann óþægi­lega á fram­ferði gam­alla nýlendu­herra, sem eru að nýta sér veik­leika í stjórn­kerfum nýfrjálsra landa“

-Hvað finnst þér um fram­ferði Samherja í Namibíu, óháð mútu­greiðslum, gagn­vart namibísku þjóð­inni?

„Auðvitað minnir þetta mann óþægi­lega á fram­ferði gam­alla nýlendu­herra, sem eru að nýta sér veik­leika í stjórn­kerfum nýfrjálsra landa.“

Vinstri græn fengu styrk upp á 1,05 millj­ónir króna á ára­bil­inu 2012 til 2018 frá Samherja. Spurð hvort henni finn­ist sið­legt að taka við fjár­fram­lögum af fyr­ir­tæk­inu, í ljósi þess sem nú er komið fram, svarar Katrín: „Ég sendi bréf á fram­kvæmda­stjórn Vinstri grænna í morgun og lagði til að við ættum að skoða hvort við vildum skila þessum styrkjum og eins hvort við viljum taka þessi styrkja­mál til gagn­gerrar umræðu á okkar vett­vangi. Það verður tekið upp á næsta fundi okkar sem verður fljót­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár