Kaþólskt barnaníð og frönsk stéttaskipting

Fyrir Guðs náð fjallar um atburði sem hafa skekið kaþólsku kirkjuna. Ásgeir H. Ingólfsson settist niður með François Ozon, einum þekktasta leik­stjóra Frakka, og Swann Arlaud, einum aðal­leikaranna þriggja, stuttu eftir frum­sýninguna og spurði þá út í myndina og málið sem var kveikjan að henni.

Sameinaðir
Sam­ein­aðir Fórn­ar­lömb prests­ins berj­ast í sam­ein­ingu fyrir því að mál hans verði tekið fyrir.

Misnotkunar­hneyksli hefur skekið frönsku kirkjuna undan­farin misseri. Nú í mars síðastliðnum var Philippe Barbarin, erki­biskupinn í Lyon, fundinn sekur um að hafa hylmt yfir með barnaníði í kaþólsku kirkjunni – en presturinn Bernard Preynat þvældist lengi á milli sókna með hans vitund og misnotaði þar ítrekað barnunga pilta. Aðeins mánuði áður en að dómur féll var hins vegar frumsýnd mynd um atburðina á kvikmynda­hátíðinni í Berlín. Hún vann Silfur­björninn sem næstbesta myndin í aðal­keppninni og heitir Fyrir Guðs náð (Grâce à Dieu) og fjallar fyrst og fremst um fórnar­lömb prestsins alræmda.

Ég settist niður með François Ozon, einum þekktasta leik­stjóra Frakka, og Swann Arlaud, einum aðal­leikaranna þriggja, stuttu eftir frum­sýninguna og spurði þá út í myndina og málið sem var kveikjan að henni. 

François Ozon hampar Silf­ur­birn­inum Fyrir Guðs náð hlaut Silf­ur­björn­inn sem næst­besta myndin á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár