Beið heyrnartólanna í hálft ár

Kona keypti vöru af net­versl­un­inni Heim­il­is­vörur en fékk hana ekki afhenta fyrr en hálfu ári síðar. For­ráða­maður net­versl­un­ar­innar segir mál hennar lík­lega hafa farið fram­hjá sér. Hann segir mik­inn dul­inn kostnað valda miklum verð­mun á milli versl­ana sinna og versl­ana á borð við Ali Express. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir að almennt þurfi neyt­endur að var­ast svik.

Beið heyrnartólanna í hálft ár

Fjöldi við­skipta­vina net­versl­un­ar­innar Heim­il­is­vara segja farir sínar ekki sléttar af við­skipt­unum. Ein þeirra, kona sem keypti heyrn­ar­tól, beið í sex mán­uði eftir því að fá vör­una afhenda.

Konan pant­aði heyrn­ar­tól í júní síð­ast­liðnum og greiddi fyrir þau 5.990 krónur, en fékk þau ekki í hend­urnar fyrr en nú í des­em­ber. Auk þess þurfti hún, þrátt fyrir þennan langa drátt á afhend­ingu, að greiða 1.400 krónur auka­lega í send­ing­ar­kostnað.

Þegar konan reyndi í byrjun októ­ber að hafa sam­band við Heim­il­is­vörur í gegnum tölvu­póst­fang sem gefið var upp á heima­síðu net­versl­un­ar­innar og ýta á eftir afhend­ingu vör­unnar feng­ust engin svör. Skömmu eftir að hún sendi póst­inn var bæði vef­síðu og Facebook-síðu versl­un­ar­innar lokað.

Heim­il­is­vörur var rekin á vegum smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Cadabra ehf., sem var stofnað undir lok árs 2017. Net­verslun Heim­il­is­vara var sett á lagg­irnar í byrjun árs 2018 og var lokað í byrjun októ­ber. Aðrar net­versl­anir á vegum sama fyr­ir­tækis eru Frost­vörur, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár