Gísli Hauksson og lobbísmi GAMMA

GAMMA var ekki bara fjár­festingar­félag heldur beitti fyrir­tækið sér líka í opinberri umræðu fyrir minnkandi ríkis­afskiptum og var því eins konar pólitísk hugveita.

Í stjórn RNH
Í stjórn RNH Jón­mundur Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður GAMMA og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er einn af stjórn­ar­mönnum hug­veit­unnar frjáls­hyggju­hug­veit­unnar RNH.

Ein af sérstöðum Gísla Hauks­sonar, og GAMMA meðan hann stýrði félaginu, var áhugi hans og fyrir­tækisins á verkefnum sem snertu pólitíska hugmynda­fræði í samfélaginu, meðal annars minnkandi ríkis­afskiptum. GAMMA var að sumu leyti eins og hugveita (e. Think tank) fyrir hugmynda­fræði frjáls­hyggju og einka­framtaks í samfélaginu og byggði þetta hlutverk fyrir­tækisins, að hluta til að minnsta kosti, á áhuga Gísla Hauks­sonar á pólitískri hugmynda­fræði. Gísli er frjáls­hyggju­maður, og það róttækur. 

Frekar sjaldgæft er að öllu jöfnu að íslensk fjár­festingar- og eða sjóð­stýringar­fyrirtæki eins og GAMMA velji að vera í því hlutverki beint að verka eins og pólitískar hugveitur eða þrýstiöfl í samfélaginu og reki áróður fyrir róttækum breytingum í ákveðna átt. 

Við þetta bætist að margir af starfs­mönnum GAMMA höfðu sterk tengsl við Sjálfstæðis­flokkinn, þess íslenska flokks sem lengst hefur verið til hægri hvað varðar minnkandi ríkis­afskipti í gegnum tíðina þótt flokkurinn rúmi vissulega líka hægri krata. Þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár