Afli dags­ins vigtaður í fisk­hús­inu á Norð­ur­firði Sjó­menn­irnir Gunnar Helgi Krist­jáns­son og Jón Geir Ásgeirs­son ásamt Krist­jáni Guð­mynds­syni flutn­inga­bíl­stjóra frá Hólmavík, en Kristján keyrir bíl­inn á milli alla daga sem fiskað er. Gunnar og Jón stunda báðir strand­veiðar frá Norð­ur­firði. Gunnar segir sjó­manna­sam­fé­lagið vera ein­stak­lega gott á Norð­ur­firði, engin sam­keppni sé í gangi heldur séu allir boðnir og búnir að hjálpa til þegar á þarf að halda, enda kemur hann frá Akureyri á hverju sumri til veiða í Norð­ur­firði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Galdrarnir á Ströndum

Norður í Árnes­hreppi á Ströndum, þar sem barist er fyrir nátt­úru og búsetu, býr venju­legt fólk, afkom­endur galdra­manna, bænda, sjó­sækj­ara og Stranda­mann­anna sterku. Harð­dug­legt fólk sem vill hvergi ann­ars staðar búa, undir mik­il­feng­legum fjöll­unum við öldur úthafs­ins.

Sólin brosir sínu breið­asta í Reykja­vík þennan sunnu­dags­morgun er lagt er af stað áleiðis norður á Strandir. Hún skín skært alla leið­ina þar til ekið er inn á þrönga mal­ar­vegi sem liggja í fjalls­hlíðum með­fram sjónum á Ströndum. Þá er eins og maður keyri inn í annan heim og þokan umvefur allt, fjöllin sjó­inn, hlíð­arnar.

Kannski dulúðin sem fylgir þokunni hafi eitt­hvað með galdra­menn­ina á Ströndum að gera. Heima­menn kunna sögur af galdra­mönn­unum á Ströndum frá fyrri tímum, en hafa þó sjálfir ekki orðið varir við neitt yfir­nátt­úru­legt.  Þó er orkan kyngi­mögnuð, fjöllin og hafið sem hafa vakað yfir staðnum frá því land byggð­ist þar. Það eru stór­kost­leg for­rétt­indi að búa á svona stað, í burtu frá hraða borg­ar­innar, umvaf­inn  mik­il­feng­leika hvert sem maður lítur.

Árnes­hreppur hefur verið í umræð­unni upp á síðkastið vegna fyr­ir­hug­aðra virkj­ana­fram­kvæmda í Hvalá. Fátt fólk er eftir á staðnum og aðeins um 15–20 manns með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár