Nýnasistar dreifa áróðri í Mosfellsbæ

Aðilar sem segj­ast tengdir sam­nor­rænum nýnas­ista­sam­tökum dreifðu áróð­urslím­miðum í Mos­fellsbæ.

Nasistar hafa fært sig upp á skaftið víða um heim undanfarin ár. Þessi mynd er tekin í Charlottesville í Bandaríkjunum.
Nasistar hafa fært sig upp á skaftið víða um heim und­an­farin ár. Þessi mynd er tekin í Charlottesville í Banda­ríkj­unum. Mynd: Shutterstock

Aðilar sem segj­ast vera hluti af Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­unni, sam­nor­rænu banda­lagi nýnas­ista, hafa dreift lím­miðum á rusla­tunnur og á skóla­lóðir í Mos­fellsbæ. Fyrir ári síðan var sams konar áróðri dreift í Hlíða­hverf­inu í Reykja­vík. 

Á vef­síðu hreyf­ing­ar­innar kemur fram að hún aðhyllist „þjóð­ern­is­fé­lags­hyggju“ og þann 27. maí síð­ast­lið­inn birt­ist færsla birt á vefnum þar sem lagt er út orðum Adolfs Hitlers: „Það sem við verðum að berj­ast fyrir, er að vernda til­veru og fjölgun kyn­þáttar okkar og þjóðar, við verðum að berj­ast fyrir afkomu barna okkar og hrein­leika blóðs okkar, fyrir frelsi og sjálf­stæði föð­ur­lands­ins, svo að okkar fólk geti þroskast til að upp­fylla verk­efnið sem að því hefur verið úthlutað af skap­ara alheims­ins. Hver ein­asta hugsun og hver ein­asta hug­mynd, hver kenn­ing og öll þekk­ing, verða að þjóna aðeins þessum til­gangi. Og allt verður að meta ein­ungis út frá þessu sjón­ar­horni og nota eða hafna eftir gagn­semi þess.“ 

Hreyf­ingin hefur verið bönnuð í Finn­landi vegna hvatn­ingar til ofbeldis og hat­urs­orð­ræðu og í Svíþjóð hafa þrír menn sem tengj­ast sam­tök­unum verið dæmdir í fang­elsi fyrir sprengju­árás í Gauta­borg.  

Límmiðar í Mosfellsbæ

Thomas Brorsen Smidt, íbúi í Mos­fellsbæ til­kynnti um lím­miða með færslu á Facebook-síðu íbúa í Mos­fellsbæ í morgun:

Áróður á vegum nýnas­ista sam­takaStrikað hefur verið yfir nafn sam­tak­ana á mynd­inni þar sem Thomas vill ekki aug­lýsa heima­síðu hreyf­ing­ar­innar.

Fleiri íbúar Mos­fells­bæjar segj­ast hafa tekið eftir slíkum áróðri í bænum. „Við konan fundum svona á öllum körfu­bolta­körf­unum í Varm­ár­skóla í vor,“ segir einn þeirra. Annar seg­ist hafa rifið 10 til 15 nas­ista­lím­miða niður af ljósastaurum í hjóla­túr um Leir­vogstung­una um dag­inn. 

Árás í Breiðholti

Í byrjun vik­unnar bár­ust fréttir af því að ráð­ist hefði verið á múslima í Breið­holti, hvæst og hrækt á þá, og er atvikið nú til rann­sóknar hjá lög­reglu. Í kjöl­farið birt­ust fjöld­inn allur af rasískum ummælum víðs­vegar á Facebook þar sem ódæðin voru rétt­lætt. 

 „Meiri hluti Íslend­inga kærir sig ekki um íslamska menn­ingu. Þeir hafa fullan rétt á því og þeir hafa fullan rétt á því að láta þá skoðun sína í ljós,“ sagði í Facebook-færslu Vakurs, sam­taka þjóð­ern­is­sinna sem reka áróður gegn inn­flytj­endum og fjöl­menn­ingu og beita sér fyrir hertri inn­flytj­enda­stefnu. Eins og Stundin greindi frá hefur umsjón­ar­maður síð­unnar geng­ist við því að aðhyll­ast fas­isma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár