Átakasaga hjóna sem búa ekki saman

Norma E. Sam­ú­els­dóttir og Þor­steinn Ant­ons­son skrif­uðu saman bók­ina Átaka­sögu um sam­band sitt sem hefur verið storma­samt í gegnum árin. Þau búa nú hvort í sínum enda Hvera­gerðis og lifa lífi sínu í sátt, í fjar­lægð og ein­kenni­legri nánd.

Vinir fyrst og fremst
Vinir fyrst og fremst Mikil vænt­um­þykja er á milli Normu og Þor­steins Mynd: Heiða Helgadóttir

Við Þor­steinn mælum okkur mót fyrir framan Bónus í Hvera­gerði. „Ég verð á grænum Subaru, þú þekkir mig þannig,“ segir hann áður en hann lýkur sím­tal­inu.

Ég er nýstigin út úr bílnum, rétt aðeins búin að teygja hend­urnar upp í loft og geispa þegar ég sé hann, stand­andi fyrir framan græna Subaru­inn. Hann er hávax­inn og grannur maður um sjö­tugt, með gler­augu og langt and­lit, grátt hár í tagli, alvar­legur yfir­litum en vina­legur samt sem áður. Ég geng að honum. „Sæll, ert þú Þor­steinn?“ „Já,“ segir hann. Hann virð­ist feim­inn eða jafn­vel hálf klunna­legur í sam­skiptum við fyrstu kynni. Ég spyr hvort við eigum ekki að leggja í hann. „Jæja, eltu mig,“ segir hann svo áður en hann sest inn í græna Subaru­inn og keyrir af stað.  

Hann keyrir hring í kringum bíla­stæði versl­un­ar­kjarn­ans, svona til að gefa til kynna að ég eigi að elta hann. Ég næ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár