Vitni ítrekað spurð hvort aðgerðin hafi „raskað öryggi“ vélarinnar

Verjandi tveggja kvenna sem sem stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla ólög­legri brott­vikn­ingu hæl­is­leit­anda gagn­rýnir lög­reglu fyrir að hafa spurt vitni í mál­inu afar leið­andi spurn­inga. Lögmenn fengu ekki afrit af upp­tökum af skýrslu­tök­unum en af máls­gögnum mætti halda að vitni hefðu tekið fram af fyrra bragði að öryggi hefði verið raskað.

Vitni ítrekað spurð hvort aðgerðin hafi „raskað öryggi“ vélarinnar

Lögmenn tveggja kvenna sem stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla ólög­legri brott­vikn­ingu hæl­is­leit­anda fengu ekki afrit af upp­tökum af skýrslu­tökum yfir vitnum máls­ins eins og venjan er. „Þetta er væg­ast sagt mjög sér­stakt,“ segir Páll Berg­þórs­son, annar lög­manna kvenn­anna í sam­tali við Stundina. Hann bendir á að lög­menn eigi lögum sam­kvæmt að fá afrit af öllum skjölum máls­ins en í þessu til­felli hafi það verið túlkað sem svo að afrit af upp­tök­unum væru ekki eig­in­leg skjöl.

Lög­menn­irnir þurftu að fara niður á skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara til þess að hlusta á skýrslu­tökur yfir vitnum. Páll segir að þá hafi komið í ljós að lög­reglu­menn spurðu vitnin afar leið­andi spurn­inga, sér­stak­lega spurn­inga er vörðuð það hvort aðgerð kvenn­anna hefði með ein­hverjum hætti raskað öryggi vél­ar­innar. Páll gagn­rýnir þetta og segir athygli vert hversu mikla áherslu lög­reglan lagði á að spyrja vitnin út í þetta til­tekna atriði.

Í end­ur­riti af skýrslu­tök­unum sem finna má í máls­gögnum er ítrekað haft eftir vitnum að þau telji að aðgerð kvenn­anna hafi raskað öryggi vél­ar­innar. Páll bendir á að þar sé hins­vegar algjör­lega látið hjá líða að greina frá því að slíkar stað­hæf­ingar hafi oftar en ekki komið fram sem svör við mjög svo leið­andi spurn­ingum lög­reglu­manna þess efnis. Athygli vekur að kon­urnar eru meðal ann­ars ákærðar fyrir að hafa raskað öryggi flug­vél­ar­innar en allt að sex ára fang­elsi liggur við brot­inu.

Allt að sex ára fangelsi

Aðal­með­ferð í máli hér­aðs­sak­sókn­ara á hendur þeim Jórunni Eddu Helga­dóttur og Ragn­heiði Freyju Krist­ín­ar­dóttur fer fram í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á morgun, mið­viku­dag. Þær eru ákærðar fyrir að hafa staðið upp í flug­vél Icelandair í maí 2016 og mót­mælt brott­vísun hæl­is­leit­and­ans Eze Okafor til Sví­þjóðar, þaðan sem senda átti hann til Nígeríu. Þar hafði Eze ástæðu til að ótt­ast um líf sitt.

Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara eru þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja sak­aðar um að hafa með hátt­erni sínu brotið gegn 106. og 168. gr. almennra hegn­ing­ar­laga með því að hafa ann­ars vegar tálmað lög­reglu­mönnum við skyldu­störf og hins­vegar raskað öryggi flug­vél­ar­innar. Þá eru þær einnig sak­aðar um að hafa brotið gegn 141. gr. loft­ferða­laga með því að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum áhafn­ar­innar í vél­inni.

Hámarks­refs­ing við broti gegn 106. grein almennra hegn­ing­ar­laga er tveggja ára fang­elsi en refs­ing við broti gegn 168. grein sömu laga getur verið allt að sex ára fang­elsi. Þá liggur allt að fimm ára fang­els­is­dómur við broti gegn 141. grein loft­ferða­laga. Þær geta því átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­els­is­dóm verði þær fundnar sekar.

Misræmi á milli upptaka og endurrits

Páll og kollegi hans af lög­manns­stof­unni Rétti, Auður Tinna Aðal­bjarna­dóttir, þurftu að gera sér ferð niður á skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara til þess að hlusta á upp­tök­urnar af skýrslu­tökum lög­reglu yfir vitnum. „Við á þess­ari stofu höfum tvisvar áður farið til Hæsta­réttar með svona mál,“ segir Páll sem gagn­rýnir að frum­gögnum sé með þessum hætti haldið frá lög­mönnum. „Það er alls ekki sjálf­sagt að lög­menn geri sér ferð til að hlusta á upp­tökur í ein­hverju her­bergi hjá sak­sókn­ara,“ segir Páll sem bætir við að það hafi sem betur fer verið gert í þessu til­viki, enda hafi ákveðið mis­ræmi komið í ljós við nán­ari skoðun.

„Ef við fáum ekki upp­tök­urnar þá eigum við að fá nákvæmt end­ur­rit af þeim,“ segir Páll sem bætir við að svo hafi ekki verið í þessu til­viki. Á upp­tök­unum megi heyra lög­reglu­menn spyrja afar leið­andi spurn­inga, sér­stak­lega þegar kemur að spurn­ingum varð­andi það hvort aðgerð kvenn­anna hafi með ein­hverjum hætti raskað öryggi vél­ar­innar. Í end­ur­riti af skýrslu­tök­unum sé hins­vegar engu lík­ara en að stað­hæf­ing­arnar hafi komið beint frá vitn­unum sjálfum.

„Þá taldi [XXX] einnig að upp­á­koman hafi raskað öryggi flug­vél­ar­innar,“ segir til dæmis á einum stað. Þá sagð­ist [XXX] telja að þetta hafi raskað öryggi flug­vél­ar­innar á þessum tíma og eins hafi fólk verið mjög hrætt eftir á,“ er haft eftir öðru vitni. „Hann sagði þessa upp­á­komu hafa raskað öryggi um borð en kon­urnar hafi þó verið án tækja og tóla,“ er haft eftir þriðja vitn­inu. Á einum stað er spurn­ing lög­reglu látin fylgja með: „Aðspurð hvort hún telji þetta hafa raskað öryggi flug­vél­ar­innar sagði [XXX] að hún telji það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár