Út í hött að Íslendingar taki þátt í Eurovision

Salmann Tamimi finnst út í hött að Íslend­ingar taki þátt í að styðja ríki, sem drepur og kúgar Palest­ínu­menn, með þátt­töku sinni í Eurovision.

Salmann Tamimi

Salmann Tamimi, Palest­ínu­manni, finnst út í hött að Íslend­ingar taki þátt í Eurovision.

Salmann flutti frá Palest­ínu til Íslands 1971, aðeins sextán ára að aldri og hefur búið hér alla tíð síðan. Salmann er einn stofn­með­lima Félags Íslands Palest­ínu og Félags múslíma á Íslandi.

„Ég sem Palest­ínu­maður, finnst það í raun og veru, vera út í hött, að taka þátt í að styðja ríki, sem er að kúga Palest­ínu­menn og drepa, í að halda keppni í Tel Aviv. Tel Aviv er tæp­lega 60 kíló­metra frá Gaza og frá Vest­ur­bakk­anum. Þar eru framin morð á okkur Palest­ínu­mönnum dag eftir dag. Við vitum ekki hversu margir verða drepnir á sama tíma og keppnin verður haldin, “ segir Salmann.

„Við vitum ekki hversu margir verða drepnir á sama tíma og keppnin verður haldin“

Salmann segir að við Íslend­ingar ættum að styðja Palest­ínu­menn. „ Við ættum að styðja fólk sem berst fyrir frelsi og rétt­læti, “ segir Salmann.

Salmann finnst að það eigi að snið­ganga svona við­burði. Hann talar um snið­göngur á menn­ing­ar­legan hátt og svo efna­hags­legan og bætir svo við að það eigi að snið­ganga við­burð­inn á öllum sviðum. Salmann bendir á að Palest­ínu­menn fá ekki aðgang að við­burð­inum, það sé aðskiln­að­ar­múr á milli. „Ef ein­hver Palest­ínu­maður vill fara til Ísrael að horfa á Eurovision, fær hann það ekki. Palest­ínu­menn mega ekki einu sinni koma til Jer­úsalem. Til að kom­ast til Tel Aviv verður þú að fara í gegnum eft­ir­lits­stöð. Þú verður að hafa leyfi til að kom­ast í gegn. Maður fær ekki leyfi til að kom­ast í gegn. Ekki einu sinni sjúk­lingar fá að fara í gegn sem þurfa að kom­ast á sjúkra­hús,“ segir Salmann.

Salmann segir að við getum ekki, á 21.öld, haldið áfram að styðja kúgun, land­töku, nýlendu­stefnu og þjóð­ar­morð. Salmann segir að hann vilji að allur heim­ur­inn taki þátt í að þrýsta á Ísrael með snið­göngum og þar með, gefa Ísrael skila­boð um að fram­ferði þeirra gegn Palest­ínu­mönnum gangi ekki.

Salmann segir aðra Palest­ínu­menn á Íslandi á sama máli.„Við erum sirka 30 manns hér, eng­inn af okkur vill halda þetta þarna,“ segir Salmann.

Hatari í Eurovision

Aðspurður hvað Salmann finnst um þátt­töku Hatara í Eurovision, svarar hann að honum finn­ist það sama gilda um Hatara og aðra kepp­endur, það eigi að snið­ganga keppn­ina. „ Þeir eru frægir hérna á Íslandi og við (Íslend­ingar) elskum þá og við vitum að þeir eru bar­áttu­menn fyrir frelsi og rétt­læti. Af hverju þá að gera sig að þátt­tak­endum í þessu þjóð­ar­morði sem á sér stað þarna?,“ segir Salmann. Salmann segir að það eigi ekki að styrkja neina rík­is­stjórn eða neitt land sem brýtur á mann­rétt­indum. Salmann bendir á að Ísland eigi ekki að leyfa Ísrael að nota þessar hljóm­sveitir í áróður. „Ekki leyfa þeim að kom­ast í fjöl­miðla og leyfa þeim að segja:Sjáðu hvað við erum að gera rétt fyrst að allir elska okkur,” segir Salmann.

„Þeir eru frægir hérna á Íslandi og við elskum þá og við vitum að þeir eru bar­áttu­menn fyrir frelsi og rétt­læti. Af hverju þá að gera sig að þátt­tak­endum í þessu þjóð­ar­morði sem á sér stað þarna?“

Salmann segir það vera fárán­lega afsökun hjá Hatara að halda að þeir nái að vera með áróður í Ísrael gegn Ísrael. „Þetta er fárán­legt finnst mér. Mér finnst þetta fárán­leg afsökun. Það mesta sem þeir geta gert er að segja nei við förum ekki vegna stefnu ykkar hvað varðar Palest­ínu. Hatari ættu að segja við Ísrael: Við komum ekki til Ísrael nema þið gefið Palest­ínu frelsi,“ segir Salmann.

Við alla Íslend­ing­ana sem ætla sér að horfa á Eurovision, vill Salmann segja, að bara með því að taka þátt í því að horfa á Eurovision eru Íslend­ingar að styðja her­nám. „Þetta er stuðn­ingur við her­nám. Þetta er stuðn­ingur við kúgun,“ segir Salmann.

„Hatari ættu að segja við Ísrael: Við komum ekki til Ísrael nema þið gefið Palest­ínu frelsi“

Salmann segir að það sé nóg annað að gera en að horfa á Eurovision. Fólk gæti farið á tón­leika í Hörpu. Salmann bendir á að það eigi ekki að vera hátíð, það eigi ekki að vera hátíð á kostnað þeirra sem þjást.

Salmann hvetur alla til að fara á snið­göngu­tón­leik­ana á Húrra í kvöld, á meðan úrslita­keppn­inni á Íslandi stendur. Salmann segir að með því geti fólk sýnt stuðn­ing í verki og mót­mælt fram­ferði Ísra­els­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár