Út í hött að Íslendingar taki þátt í Eurovision

Salmann Tamimi finnst út í hött að Íslendingar taki þátt í að styðja ríki, sem drepur og kúgar Palestínu­menn, með þátttöku sinni í Eurovision.

Salmann Tamimi

Salmann Tamimi, Palestínu­manni, finnst út í hött að Íslendingar taki þátt í Eurovision.

Salmann flutti frá Palestínu til Íslands 1971, aðeins sextán ára að aldri og hefur búið hér alla tíð síðan. Salmann er einn stofn­meðlima Félags Íslands Palestínu og Félags múslíma á Íslandi.

„Ég sem Palestínu­maður, finnst það í raun og veru, vera út í hött, að taka þátt í að styðja ríki, sem er að kúga Palestínu­menn og drepa, í að halda keppni í Tel Aviv. Tel Aviv er tæplega 60 kílómetra frá Gaza og frá Vestur­bakkanum. Þar eru framin morð á okkur Palestínu­mönnum dag eftir dag. Við vitum ekki hversu margir verða drepnir á sama tíma og keppnin verður haldin, “ segir Salmann.

„Við vitum ekki hversu margir verða drepnir á sama tíma og keppnin verður haldin“

Salmann segir að við Íslendingar ættum að styðja Palestínu­menn. „ Við ættum að styðja fólk sem berst fyrir frelsi og réttlæti, “ segir Salmann.

Salmann finnst að það eigi að sniðganga svona viðburði. Hann talar um snið­göngur á menningar­legan hátt og svo efnahags­legan og bætir svo við að það eigi að sniðganga viðburðinn á öllum sviðum. Salmann bendir á að Palestínu­menn fá ekki aðgang að viðburðinum, það sé aðskilnaðarmúr á milli. „Ef einhver Palestínu­maður vill fara til Ísrael að horfa á Eurovision, fær hann það ekki. Palestínu­menn mega ekki einu sinni koma til Jerúsalem. Til að komast til Tel Aviv verður þú að fara í gegnum eftirlitsstöð. Þú verður að hafa leyfi til að komast í gegn. Maður fær ekki leyfi til að komast í gegn. Ekki einu sinni sjúklingar fá að fara í gegn sem þurfa að komast á sjúkrahús,“ segir Salmann.

Salmann segir að við getum ekki, á 21.öld, haldið áfram að styðja kúgun, landtöku, nýlendu­stefnu og þjóðar­morð. Salmann segir að hann vilji að allur heimurinn taki þátt í að þrýsta á Ísrael með snið­göngum og þar með, gefa Ísrael skilaboð um að framferði þeirra gegn Palestínu­mönnum gangi ekki.

Salmann segir aðra Palestínu­menn á Íslandi á sama máli.„Við erum sirka 30 manns hér, enginn af okkur vill halda þetta þarna,“ segir Salmann.

Hatari í Eurovision

Aðspurður hvað Salmann finnst um þátttöku Hatara í Eurovision, svarar hann að honum finnist það sama gilda um Hatara og aðra keppendur, það eigi að sniðganga keppnina. „ Þeir eru frægir hérna á Íslandi og við (Íslendingar) elskum þá og við vitum að þeir eru baráttu­menn fyrir frelsi og réttlæti. Af hverju þá að gera sig að þátt­takendum í þessu þjóðar­morði sem á sér stað þarna?,“ segir Salmann. Salmann segir að það eigi ekki að styrkja neina ríkis­stjórn eða neitt land sem brýtur á mann­réttindum. Salmann bendir á að Ísland eigi ekki að leyfa Ísrael að nota þessar hljóm­sveitir í áróður. „Ekki leyfa þeim að komast í fjölmiðla og leyfa þeim að segja:Sjáðu hvað við erum að gera rétt fyrst að allir elska okkur,” segir Salmann.

„Þeir eru frægir hérna á Íslandi og við elskum þá og við vitum að þeir eru baráttu­menn fyrir frelsi og réttlæti. Af hverju þá að gera sig að þátt­takendum í þessu þjóðar­morði sem á sér stað þarna?“

Salmann segir það vera fáránlega afsökun hjá Hatara að halda að þeir nái að vera með áróður í Ísrael gegn Ísrael. „Þetta er fáránlegt finnst mér. Mér finnst þetta fáránleg afsökun. Það mesta sem þeir geta gert er að segja nei við förum ekki vegna stefnu ykkar hvað varðar Palestínu. Hatari ættu að segja við Ísrael: Við komum ekki til Ísrael nema þið gefið Palestínu frelsi,“ segir Salmann.

Við alla Íslendingana sem ætla sér að horfa á Eurovision, vill Salmann segja, að bara með því að taka þátt í því að horfa á Eurovision eru Íslendingar að styðja hernám. „Þetta er stuðningur við hernám. Þetta er stuðningur við kúgun,“ segir Salmann.

„Hatari ættu að segja við Ísrael: Við komum ekki til Ísrael nema þið gefið Palestínu frelsi“

Salmann segir að það sé nóg annað að gera en að horfa á Eurovision. Fólk gæti farið á tónleika í Hörpu. Salmann bendir á að það eigi ekki að vera hátíð, það eigi ekki að vera hátíð á kostnað þeirra sem þjást.

Salmann hvetur alla til að fara á sniðgöngu­tónleikana á Húrra í kvöld, á meðan úrslita­keppninni á Íslandi stendur. Salmann segir að með því geti fólk sýnt stuðning í verki og mótmælt framferði Ísraels­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár