Sigurður Pálmi kaupir líka verslun á Stykkishólmi af Högum

Sigurður Pálmi Sigur­björnsson kaupir verslun Olís við bensín­stöðina á Stykkis­hólmi. Olís rekur bensín­hlutann áfram. Kvika fjár­magnar Sigurð Pálma með 210 milljóna króna láni.

Hluti af sáttinni við Samkeppniseftirlitið
Hluti af sátt­inni við Sam­keppn­is­eft­ir­litið Sala Haga á verslun Olís á Stykk­is­hólmi til Sigurðar Pálma er hluti upp sátt Haga við Sam­keppn­is­eft­ir­litið.

Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, sonur Ingibjargar Pálma­dóttur fjár­festis, hefur keypt húsið sem hýst hefur bensínstöð olíu­félagsins Olís á Stykkis­hólmi af smásölu­risanum Högum. Sigurður Pálmi segir að hann muni reka þar verslun- og veitinga­sölu en að Olís muni hins vegar áfram eiga og reka bensín­dælurnar við stöðina. „Ég er að kaupa grillskála þarna; þetta er bara Olísskáli sem ég keypti. Það er bensínstöð á planinu en ég keypti hana ekki heldur bara sjoppuna. Þetta bara fylgdi með í pakkanum í viðskiptunum við Haga,“ segir Sigurður Pálmi, sem ekki hefur ákveðið undir hvaða merkjum hann muni reka verslunina. Hann segir ekki standi til að hann kaupi frekari verslanir, eða sjoppur, á lands­byggðinni. 

Fjallað er um viðskipti félags Sigurðar Pálma, Ísborgar ehf., með húsið sem bensín­stöðin er í, í þinglýstu umboði frá nýrri stjórn Haga þar sem Finni Árnasyni er heimilað að leyfa veðsetningu á bensín­stöðinni í Hólminum og veðsetningu á fasteign í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár