Páll Óskar biðst afsökunar: „Mun aldrei framar hallmæla gyðingum“

Tón­list­ar­mað­ur­inn iðr­ast niðr­andi ummæla sem hann lét falla um gyð­inga og hel­för­ina. „Ég bland­aði rík­is­stjórn Ísraels, Ísra­els­her og gyð­ingum saman í einn graut. Ég fór með áfell­is­dóma og alhæf­ingar um gyð­inga.“

Páll Óskar biðst afsökunar: „Mun aldrei framar hallmæla gyðingum“

Páll Óskar Hjálmtýs­son hefur birt yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hann biðst afsök­unar á orðum sem hann lét falla um gyð­inga í útvarps­við­tali í gær.

Stundin fjall­aði um ummæli Páls Óskars í dag en hér má lesa yfir­lýs­ingu hans í heild:

Ég ræddi snið­göngu gegn Eurovision vegna stríðs­glæpa Ísra­els­hers ásamt Skarp­héðni Guð­munds­syni, dag­skrár­stjóra RÚV í Lestinni á Rás 1 í gær. Ég við­ur­kenni fús­lega að ég gekk allt of langt í orðum mínum, ég bland­aði rík­is­stjórn Ísrael, Ísra­els­her og gyð­ingum saman í einn graut. Ég fór með áfell­is­dóma og alhæf­ingar um gyð­inga.

Orðrétt sagði ég í útvarps­þætt­inum: "Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyð­ingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hip og kúl að vera „pro-Palest­ína“ í Bret­landi.“

Og undir lok við­tals­ins:

"Tra­gedían er sú að gyð­ingar lærðu ekki neitt af Hel­för­inni. Í stað­inn umbreytt­ust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðs­leg­asta óvini."

Ég tek fulla ábyrgð á þessum ummælum, tek þessi orð mín um gyð­inga til baka, þau eru röng og sær­andi.

Ég sýni ábyrgð mína í verki héðan í frá, og mun aldrei framar hall­mæla gyð­ingum, hvar sem þeir búa í heim­inum. 

Rík­is­stjórn Ísraels, Ísra­els­her og stjórn­ar­stefna þeirra fær aftur á móti engan afslátt. Restin af ummæl­unum standa.

Heim­ur­inn hefur verið vitni að ára­tuga ofbeldi gegn Palest­ínu­mönnum og mörgum þótt hrika­legt að fólkið sem Helförin beind­ist gegn skuli ganga fram með þeim hætti sem Ísra­els­her gerir.

Eins og gefur að skilja hafa þessar alhæf­ingar mínar, að blanda saman gyð­ingum við stjórn­ar­stefnu Zíonista, vakið hörð við­brögð sem ég tek fús­lega ábyrgð á.

Páll Óskar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár