Klaustursmálið: Upptökum úr myndavélum Alþingis var eytt

„Þá hefur verið upp­lýst að upp­tökum úr mynda­vélum Alþingis hafi verið eytt,“ segir í úrskurði Lands­réttar þar sem kröfu Mið­flokks­manna um gagna­öflun vegna Klaust­urs­máls­ins er hafnað.

Klaustursmálið: Upptökum úr myndavélum Alþingis var eytt

Upptökum úr mynda­vélum Alþingis frá 20. nóv­em­ber 2018 hefur verið eytt. Þetta kemur fram í úrskurði Lands­réttar vegna Klaust­urs­máls­ins þar sem nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, um að hafna kröfu Mið­flokks­manna um gagna­öflun og vitna­leiðslur er stað­fest. 

„Við með­ferð máls­ins fyrir Lands­rétti voru lögð fram gögn um að Per­sónu­vernd hefði óskað eftir upp­tökum úr eft­ir­lits­mynda­véla­kerfi veit­inga­stof­unnar Klaust­urs. Jafn­framt að fram hafi komið hjá fyr­ir­svars­manni veit­inga­stof­unnar að gerðar hafi verið ráð­staf­anir til að varð­veita upp­tök­urnar í sex mán­uði. Þá hefur verið upp­lýst að upp­tökum úr mynda­vélum Alþingis hafi verið eytt og að ekki séu eft­ir­lits­mynda­vélar á vegum dóm­kirkj­unnar,“ segir í úrskurð­inum sem Stundin hefur undir höndum.

„Það eru engar upp­tökur til hér frá þessu kvöldi“

Áður hefur Helgi Bern­ód­us­son skrif­stofu­stjóri Alþingis sagt í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um tengd mál­efni: „Það eru engar upp­tökur til hér frá þessu kvöldi. Væri það svo mundum við hvorki varð­veita slíkt né afhenda öðrum en lög­reglu.“

Lands­réttur taldi þing­menn Mið­flokks­ins ekki hafa sýnt fram á að gagna­öfl­unin væri nauð­syn­leg til að und­ir­byggja ákvörðun um mál­sókn. Var því úrskurður hér­aðs­dóms stað­festur og þing­menn­irnir dæmdir til að greiða Báru Hall­dórs­dóttur 300 þús­und krónur í kæru­máls­kostnað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár