Bára hafði betur: Landsréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms

Tvö dómsstig hafa nú hafnað kröfu Klausturs­manna um gagna­öflun og vitna­leiðslur vegna fyrir­hugaðrar málsóknar gegn Báru Halldórs­dóttur.

Lands­réttur hefur staðfest úrskurð Héraðs­dóms Reykja­víkur er varðar fyrir­hugaða málsókn þingmanna Miðflokksins gegn Báru Halldórs­dóttur vegna hljóð­ritunar á samskiptum þeirra á veitinga­staðnum Klaustri. 

Þing­mennirnir, þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, fóru fram á að ráðist yrði í gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir héraðs­dómi í desember. Þeirri kröfu var hafnað í héraði þann 19. desember en þing­mennirnir áfrýjuðu málinu til Lands­réttar.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar kvað Lands­réttur upp úrskurð í dag þar sem niður­staða Héraðs­dóms er staðfest og máls­kostnaður felldur á þing­mennina. 

Bára Halldórs­dóttir steig fram í forsíðu­viðtali við Stundina þann 7. desember síðastliðinn. „Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­mennirnir töluðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skilningar­vitum. Svo ég byrjaði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra,“ sagði hún sem sjálf er hinsegin og öryrki. „Því meira sem ég hlustaði, því reiðari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minnihluta­hópa á almanna­vettvangi. Ég held að það hafi verið rétt að upplýsa almenning um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því.“

Af bréfum sem lögmaður þingmanna Miðflokksins hefur sent héraðs­dómi og Persónu­vernd má ráða að þing­mennirnir vilji að Bára Halldórs­dóttir sæti refsingu, greiði þeim miska­bætur og verði sektuð af Persónu­vernd vegna ólögmætrar „njósna­aðgerðar“ sem þing­mennirnir telja sig hafa orðið fyrir.

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hefur lýst skilningi á þessum aðgerðum þing­mannanna. „Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég kominn með hundleið á þessu máli. Ég skil alveg það sem Sigmundur Davíð er að benda á og tel að vilji menn láta reyna á rétt sinn til þess að kalla fram frekari gögn og upplýsingar þá sé mjög hæpið að menn reyni að leggja stein í götu þeirra,“ sagði hann í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár