Tíu mest lesnu viðtöl Stundarinnar árið 2018

Anna Gílaphon Kjart­ans­dóttir segir frá ólýs­an­legu ofbeldi sem hún þurfti að sæta á heim­il­inu af hálfu föður síns og stjúp­móður, Sig­ur­björg Vign­is­dóttir segir frá því hvernig hún lifði það af þegar henni var rænt af austur-evr­ópskri mafíu í París sem mis­þyrmdi henni og afleið­ingum þess, og Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir lýsir trú­ar­legu ofbeldi innan Hvíta­sunnu­kirkj­unnar. Þetta eru mest lesnu við­töl Stund­ar­innar árið 2018.

Tíu mest lesnu viðtöl Stundarinnar árið 2018

1 „Ég lít ekki lengur á hann sem pabba minn“

Eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Anna Kjart­ans­dóttir ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, meðal ann­ars á Höfn í Horna­firði. Faðir hennar sat í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni þegar hún ákvað að stíga fram og segja frá mis­þyrm­ingum sem hún mátti þola á heim­il­inu, en stjúpa hennar hafði þegar verið dæmd fyrir ofbeldið sem hún beitti börnin. Engin heim­ild er í lögum til að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða til að vernda börn í þessum aðstæðum.

„Það sést að mér leið ekki vel. Samt gerði fólk ekk­ert í því. Ég var alltaf með falskt bros, sem náði ekki til augn­anna. Oft brosti ég vegna þess að ég var við það að bresta í grát.“

Viðtalið við Önnu var birt í jan­úar en síðar á árinu var faðir hennar dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum. Haustið áður hafði eldri systir þeirra, Guðrún Kjart­ans­dóttir, einnig stigið fram í við­tali við Stundina og var það mest lesna við­tal árs­ins 2017. Alls lásu 111.605 við­talið við Önnu.

2 Rænt í París

Eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Þegar Sig­ur­björg Vign­is­dóttir fékk starf sem au pair í Lúx­em­borg sá hún fyrir sér að nú væru ævin­týrin rétt að hefj­ast. Hún sá þarna tæki­færi til að standa á eigin fótum, ferð­ast og vera frjáls. Eftir um mán­að­ar­dvöl úti fór fjöl­skyldan til Frakk­lands, þar sem hún drakk í sig menn­ing­una, naut lífs­ins og feg­urð­ar­innar í París. Þar til allt breytt­ist í einni svipan og myrkrið lagð­ist yfir, þegar henni var rænt af austur-evr­ópskri mafíu, sem mis­þyrmdi henni og skildi eftir í sárum sínum.

„Mig langar að segja frá því hvernig lífið getur breyst á örskots­stundu, hvernig ein nótt getur breytt öllu,“ sagði Sig­ur­björg. „Ég var átján ára áhyggju­laus ung­lingur úti að skemmta mér í mið­borg Parísar, ást­ar­borg­inni sem þekkt er fyrir feg­urð sína og sjarma, þegar þetta gerð­ist. Hvernig atburðir geta átt sér stað sem þú hefðir aldrei getað ímyndað þér, trúað að væru svo erf­iðir og mikil vinna að yfir­stíga þá. Að þú getir varla trúað því að þú kom­ist nokkurn tím­ann yfir þessar enda­lausar end­ur­upp­lif­anir, martraðir og svefn­leysi.“

3 Beitt trúarlegu ofbeldi í tíu ár

Eftir Frey Rögn­valds­son.

Tvítug að aldri var Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir and­lega nið­ur­brotin, með ógreinda áfallastreituröskun eftir kyn­ferð­is­brot og önnur áföll. Hún hafði deyft sig með áfengi en tek­ist að snúa við blað­inu, aðeins til þess að aðrir erf­ið­leikar tækju við, átröskun og alvar­leg veik­indi í fjöl­skyldu hennar. Steinunn var því and­lega mjög veik fyrir þegar hún fann líkn innan Hvíta­sunnu­kirkj­unnar. En þrátt fyrir að veran innan kirkj­unnar hjálp­aði Stein­unni að rísa aftur upp þýddi hún annað, tíu ár af því sem Steinunn kallar trú­ar­legt ofbeldi.

„Það var verið að reyna að koma því inn hjá mér, og þeim sem voru innan safn­að­ar­ins, að konan ætti að vera und­ir­gefin manni sínum, að vera und­ir­gefin kona væri í sam­ræmi við það sem Biblían boðar. Í sumum til­fellum er það hrein­lega boðað að konan eigi ekki að hafna manni sínum um kyn­líf, þau hafi gert samn­ing sem inni­ber það. Það er alið á ótrú­lega mik­illi kvenna­kúgun þarna inni.“

4 Tóku ákvörðun sem enginn ætti að þurfa að taka

Eftir Kristínu Ýr Gunn­ars­dóttur.

Kolbrún Ýr Ein­ars­dóttir og Sigurður Trausti Trausta­son þurftu að taka ákvörðun um að slökkt yrði á vél­unum sem héldu lífi í Rökkva, syni þeirra. Þau lof­uðu hvort öðru að halda áfram að lifa og finna ham­ingj­una aftur.

„Ég man að ég tók allt í einu eftir því að glugg­inn væri opinn og fyllt­ist hræðslu að sálin hans myndi hverfa út um glugg­ann, en róað­ist svo og fannst það allt í lagi að hann svifi bara út í sól­ina“

5 Fórnaði sjálfri sér fyrir tvíburana

Eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Þegar Þórdís Elva Þor­valds­dóttir missti vatnið á sautj­ándu viku töldu læknar úti­lokað að börnin myndu lifa næstu tvær vikur af, hvað þá alla með­göng­una. En þeir þekktu ekki bar­áttu­anda Þórdísar Elvu. Þegar hún heyrði að eitt pró­sent líkur væru á að hægt væri að bjarga börn­unum ákvað hún að leggja allt í söl­urnar til að sigr­ast á hinu ómögu­lega, jafn­vel þótt hún þyrfti að fórna eigin heilsu. Þar með upp­hófst þrekraun Þórdísar Elvu sem lá hreyf­ing­ar­laus fyrir í 77 daga og oft var lífi hennar ógnað. En ávöxt­ur­inn var ríku­legur, því í dag eiga þau hjónin tví­burana, Svan og Hlyn.

„Vonin er það síð­asta sem yfir­gefur mann og vonin er það sem þér ber skylda til að næra í aðstæðum þar sem þú ert að berj­ast fyrir lífi barns. Ekkert getur búið þig undir það að missa barn. Þú getur ekki varið þig fyrir þeim sárs­auka með því að gera þér engar vonir, en ef þú leyfir þér ekki að vona þá er þetta búið. Þannig að ég sagði við Víði að ég ætl­aði að leyfa mér að dreyma.“

6 Ákvað að lifa í gleði þrátt fyrir barnsmissi og sorg

Eftir Svövu Jóns­dóttur.

„Ég grét á hverjum degi í tvö ár. Ég átti rosa­lega erfitt,“ segir Svandís Sturlu­dóttir sem varð móðir sextán ára gömul og missti sex vikna gam­alt barnið. Fimm árum síðar lést annað barn dag­inn sem það fædd­ist. Alls hefur hún eign­ast fimm börn og á auk þess tvö stjúp­börn. „Ég tók ákvörðun um að takast á við sorg­ina og lagði áherslu á að sjá lífið hvað sem það kost­aði; að halda áfram var það eina sem komst að.“ Fleiri áföll hafa dunið á en Svandís reynir að njóta lífs­ins og leggur áhersl­una á gleð­ina sem það býður upp á.

7 „Af hverju á ég að beygja mig undir þá sem eru í gröfinni?“

Eftir Frey Rögn­valds­son.

Ragnar Aðal­steins­son gjör­breytti afstöðu sinni til stjórn­mála þegar hann sá hvernig nöktu valdi var beitt gegn mót­mæl­endum, en ferð­að­ist um heim­inn og ílengd­ist á Spáni á tímum ein­ræð­is­herr­ans Franco áður en hann lagði lög­fræði fyrir sig. Hann er sjö barna faðir, faðir tveggja ung­linga, sem berst fyrir félags­legu rétt­læti og mann­rétt­indum. Eftir 56 ára feril segir hann póli­tík ráða för innan dóm­stól­anna, Hæsti­réttur hafi beygt sig fyrir lög­gjaf­ar­vald­inu og brugð­ist skyldu sinni. Því sé óum­flýj­an­legt að taka upp nýja stjórn­ar­skrá, en meiri­hluti Alþingis hunsi vilja fólks­ins og gæti frekar hags­muna hinna efna­meiri, þeirra sem hafa völdin í þjóð­fé­lag­inu. 

8 Dauðinn er bara hinn endinn á fæðingunni

Eftir Frey Rögn­valds­son.

Ólöf Elfa Leifs­dóttir ótt­ast ekki dauð­ann eða þykir óþægi­legt að tala um hann, jafn­vel þótt hún viti að hann muni sækja hana heim fyrr en síðar. Hún ætlar sér að njóta lífs­ins og vera ham­ingju­söm þrátt fyrir erf­iðan sjúk­dóm. „Ég vil hafa eitt­hvað að lifa fyrir og sjá ein­hverja fram­tíð, kannski ekki mjög langa, svona ár í senn. Svo bara tekst ég á við hitt, ef og þegar það kemur upp. Óhjá­kvæmi­lega dey ég ein­hvern tíma en það gera það allir, lífs­hlaup fólks er bara mis­langt.“

9 Nálgunarbannið ekki virði pappírsins sem það er ritað á

Eftir Hólm­fríði Helgu Sig­urð­ar­dóttur.

Fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður Áslaugar Ragn­hild­ar­dóttur var dæmdur í fjög­urra mán­aða fang­elsi fyrir að ráð­ast á hana þar sem hún lá í rúm­inu sínu að kvöldi til og draga hana út á gólf á hár­inu. Hann var lát­inn sæta nálg­un­ar­banni en hefur engu að síður áreitt hana við­stöðu­laust í þau tvö ár sem liðin eru frá skiln­aði þeirra. „Hann eyði­lagði allt sem hann gat þarna inni. Hann skemmdi raf­magns­tæki, hellti máln­ingu yfir allt, skar bút úr sófa­sett­inu, braut og braml­aði.“

10 Rænt á unglingsárum og seld mansali

Eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Logan Smith var sextán ára þegar henni var rænt af kunn­ingja sínum og seld man­sali. Hún er nú búsett hér á landi með íslenskum eig­in­manni sínum og segir sögu sína til að vekja fólk til vit­undar um mis­mun­andi birt­ing­ar­myndir mansals og mik­il­vægi þess að bregð­ast við. „Ég varð svo hrædd eftir þetta, jafn­vel í návígi hans, að ég sagði honum að ég væri of ótta­slegin til að vera þarna, ég ætl­aði að fara og finna út úr þessu á eigin vegum. Þá hót­aði hann mér því að lög­reglan væri að leita að mér og sem stroku­barn færi ég í fang­elsi. Ég yrði að vera hjá honum og gera það sem hann segði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár