Fórnaði sjálfri sér fyrir tvíburana

Læknar töldu úti­lokað að börnin gætu lifað með­göng­una af eftir að vatnið fór á sautj­ándu viku, en þeir þekktu ekki bar­áttu­anda Þórdísar Elvu Þor­valds­dóttur. Þegar hún heyrði að eitt pró­sent líkur væru á að hægt væri að bjarga börn­unum ákvað hún að leggja allt í söl­urnar til að sigr­ast á hinu ómögu­lega. Þar með upp­hófst þrekraun Þórdísar Elvu sem lá hreyf­ing­ar­laus fyrir í 77 daga og oft var lífi hennar ógnað. En ávöxt­ur­inn var ríku­legur, því í dag eiga þau hjónin tví­bura.

Fórnaði sjálfri sér fyrir tvíburana

Hefur þú minnstu hug­mynd um hvað ég get verið þrjósk? Hvað ég bý yfir mik­illi bar­átt­uglóð? voru spurn­ing­arnar sem kvikn­uðu innra með Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur þegar henni var tjáð að það væri nán­ast úti­lokað að tví­burarnir sem hún bar undir belti myndu lifa með­göng­una af. Hún sem hefur sigr­ast á hverri áskor­un­inni á fætur annarri þekkti styrk sinn nægi­lega vel til þess að hafa ráð­legg­ingar lækna að engu og leggja sjálfa sig að veði til að bjarga lífi barn­anna. Þar sem hún lá á spít­al­anum eftir að hafa misst legvatnið á sautj­ándu viku sögðu þeir henni að gera sér engar grillur, það væri henni fyrir bestu að láta af allri von. En „vonin er það síð­asta sem yfir­gefur okkur og það sem okkur ber skylda til að næra,“ bendir hún á. Við tók þriggja mán­aða þrekraun þar sem Þórdís Elva lá nán­ast hreyf­ing­ar­laus fyrir á meðan hún barð­ist fyrir lífi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár