Rænt á unglingsárum og seld mansali

Logan Smith var sextán ára þegar henni var rænt af kunn­ingja sínum og seld man­sali. Hún er nú búsett hér á landi með íslenskum eig­in­manni sínum og segir sögu sína til að vekja fólk til vit­undar um mis­mun­andi birt­ing­ar­myndir mansals og mik­il­vægi þess að bregð­ast við.

Rænt á unglingsárum og seld mansali

Logan Smith er 23 ára kona, búsett í Reykja­vík ásamt eig­in­manni sínum, Eggerti Sig­urðs­syni. Hjónin kynnt­ust í Japan þar sem þau felldu hugi saman, en Logan lagði meðal ann­ars stund á rann­sóknir á man­sali. Hún er sjálf þol­andi mansals. Aðeins sextán ára gömul lenti hún í klóm kunn­ingja síns, stráks sem hún kann­að­ist við úr skól­anum og hafði spjallað við á net­inu þegar hann bauðst til þess að aðstoða hana við að flýja erf­iðar heim­il­is­að­stæður. Hún gleymir aldrei augna­blik­inu þegar það rann upp fyrir henni að hann hafði logið að henni, og segir að þótt margt í sögu hennar eigi við aðstæður í Banda­ríkj­unum séu þar engu að síður ákveðin þemu sem hægt er að heim­færa á flest sam­fé­lög. Það sem kom fyrir hana gæti alveg eins gerst hér á landi eins og ann­ars staðar. 

Einmana barn 

Logan ólst upp í Indiana fylki í Banda­ríkj­unum þar sem hún var ætt­leidd af vel­vilj­uðu fólki þegar hún var unga­barn.  Þegar hún var aðeins tveggja ára greind­ist móðir hennar með krabba­mein og næstu tólf árin settu veik­indin mark sitt á fjöl­skyld­una. Faðir hennar glímdi einnig við þung­lyndi. Þegar hún var að kom­ast á ung­lings­árin versnuðu veik­indi móður hennar veru­lega, en fram að því hafði móðir hennar verið mikið á spít­ala eða heima, uppi í rúmi og vildi þá fá að vera í friði frá fólki.  

„Ég ólst upp við þá til­finn­ingu að ég væri elskuð og að for­eldrar mínir bæru hag minn fyrir brjósti,“ segir Logan, sem á minn­ingu af móður sinni mæta í hjóla­stól á fót­bolta­leik þar sem Logan var að keppa. „Hún var virki­lega að reyna. Vegna aðstæðna var ég samt mikið ein þegar ég var að alast upp. Pabbi var að vinna og mamma lá í rúm­inu, svo mér leið alltaf eins og ég væri ein í hús­inu. Á tveggja tíma fresti fór ég að athuga með mömmu en ég eld­aði fyrir mig sjálf, kom mér sjálf á fætur og í skól­ann og gerði það sem gera þurfti. Ég var mjög ein­mana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár