Rænt í París

Þegar Sig­ur­björg Vign­is­dóttir fékk starf sem au pair í Lúx­em­borg sá hún fyrir sér að nú væru ævin­týrin rétt að hefj­ast. Hún sá þarna tæki­færi til að standa á eigin fótum, ferð­ast og vera frjáls. Eftir um mán­að­ar­dvöl úti fór fjöl­skyldan til Frakk­lands, þar sem hún drakk í sig menn­ing­una, naut lífs­ins og feg­urð­ar­innar í París. Þar til allt breytt­ist í einni svipan og myrkrið lagð­ist yfir, þegar henni var rænt af austur-evr­ópskri mafíu, sem mis­þyrmdi henni og skildi eftir í sárum sínum.

„Mig langar að segja frá því hvernig lífið getur breyst á örskots­stundu, hvernig ein nótt getur breytt öllu,“ segir Sig­ur­björg. „Ég var átján ára áhyggju­laus ung­lingur úti að skemmta mér í mið­borg Parísar, ást­ar­borg­inni sem þekkt er fyrir feg­urð sína og sjarma, þegar þetta gerð­ist. Hvernig atburðir geta átt sér stað sem þú hefðir aldrei getað ímyndað þér, trúað að væru svo erf­iðir og mikil vinna að yfir­stíga þá. Að þú getir varla trúað því að þú kom­ist nokkurn tím­ann yfir þessar enda­lausar end­ur­upp­lif­anir, martraðir og svefn­leysi. Að einn dag­inn áttar þú þig á því að þú ert ekki lengur að hugsa um þetta allan dag­inn alla daga. Að þú getir sofið, borðað og verið glöð. Það er kannski stærsti sig­ur­inn sem þú getur upp­lifað eftir svona stranga bar­áttu, því hún hefur kannski ekki verið mjög löng, bara fögur ár, en vissu­lega ströng og mikið drama, miklar sveiflur, sterkar til­finn­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár