Nálgunarbannið ekki virði pappírsins sem það er ritað á

Fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður Áslaugar Ragn­hild­ar­dóttur var dæmdur í fjög­urra mán­aða fang­elsi fyrir að ráð­ast á hana þar sem hún lá í rúm­inu sínu að kvöldi til og draga hana út á gólf á hár­inu. Hann var lát­inn sæta nálg­un­ar­banni en hefur engu að síður áreitt hana við­stöðu­laust í þau tvö ár sem liðin eru frá skiln­aði þeirra.

Nálgunarbannið ekki virði pappírsins sem það er ritað á
Safnaði hót­unum Áslaug til­kynnti hvert brot á nálg­un­ar­banni til lög­reglu. Á tíma­bili var áreitið svo mikið að hún safn­aði hót­un­unum saman og fór með þær í bunkum. Þrátt fyrir að sýna fram á marg­ít­rekuð brot á nálg­un­ar­banni hafði það engin áhrif. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þann 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, fyrir nákvæm­lega mán­uði síðan, hafði Áslaug Ragn­hild­ar­dóttir sam­band við lög­reglu og til­kynnti að sést hefði til fyrr­ver­andi sam­býl­is­manns hennar, Thomas DeF­arrier, í Hagkaup í Skeif­unni. Ekki hafði sést til hans á land­inu um skeið, síðan um það leyti er hann fékk fjög­urra mán­aða fang­els­is­dóm eftir gróft ofbeldi á hendur henni. Lög­reglan brást ekki við til­kynn­ing­unni á nokkurn hátt.

Áslaug ber merki þess að hafa búið við ofbeldi af hendi manns­ins. Hún er með ör á nef­inu eftir að hann skall­aði hana í and­litið svo hún nef­brotn­aði. Seinna þurfti hún að fara í aðgerð þar sem nef­göng hennar sködd­uð­ust við höggið. Þetta var aðeins eitt skipti af mörgum þar sem Thomas hefur ráð­ist á hana. Versta til­fellið var fyrir tveimur árum þegar hann réðst á hana með hurð­ar­karms­lista, þar sem hún lá í rúmi á heim­ili þeirra. Hún upp­lifði árás­ina þannig að hann hygð­ist drepa hana. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár