Valdi að lifa í gleði Svandís missti tvö börn og þótt sorgin verði alltaf hluti af líf­inu þá valdi hún lífið og gleð­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ákvað að lifa í gleði þrátt fyrir barnsmissi og sorg

„Ég grét á hverjum degi í tvö ár. Ég átti rosa­lega erfitt,“ segir Svandís Sturlu­dóttir sem varð móðir sextán ára gömul og missti sex vikna gam­alt barnið. Fimm árum síðar lést annað barn dag­inn sem það fædd­ist. Alls hefur hún eign­ast fimm börn og á auk þess tvö stjúp­börn. „Ég tók ákvörðun um að takast á við sorg­ina og lagði áherslu á að sjá lífið hvað sem það kost­aði; að halda áfram var það eina sem komst að.“ Fleiri áföll hafa dunið á en Svandís reynir að njóta lífs­ins og leggur áhersl­una á gleð­ina sem það býður upp á.

„Hann var rétt að byrja að brosa þegar hann dó,“ segir Svandís Sturlu­dóttir um son sinn sem lést aðeins sex vikna gam­all. Sjálf var hún aðeins barn að aldri, sextán ára gömul og nýbökuð móðir.

Svandís ólst upp í Vest­ur­bænum í Reykja­vík en flutt­ist norður í land með fjöl­skyldu sinni níu ára gömul. Þar kynnt­ist hún jafn­aldra sínum, Jóhanni, þegar hún var fimmtán ára og varð þunguð. „Ég byrj­aði ekki á blæð­ingum og mér varð fljót­lega ofsa­lega óglatt á morgn­ana og mig fór að gruna að ég væri ófrísk. Ég varð miður mín en samt fann ég að ég myndi takast á við þetta.“

Hún ræddi þetta við for­eldra sína sem sýndu mik­inn skiln­ing, en höfðu áhyggjur af henni. Í stór­fjöl­skyld­unni varð hins vegar uppi­stand og fólki fannst ýmis­legt um málið, segir hún. „En ég var algjör­lega ákveðin í að eign­ast barnið sem var auð­vitað ákveð­inn barna­skapur þegar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár