Tíu mest lesnu úttektir, afhjúpanir og rannsóknir Stundarinnar árið 2018

„Ég verð fyrstur til að við­ur­kenna það. Maður var algjört fífl,“ sagði maður sem tólf konur sök­uðu um að hafa brotið gegn sér, en nauðg­un­ar­kærum á hendur honum var vísað frá. Rann­sókn­ar­grein um málið var sú mest lesna á vef Stund­ar­innar á árinu, en við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur, sam­kyn­hneigðan öryrkja og upp­ljóst­arar kom þar á eftir og afhjúpun á því hvernig Bragi Guð­brands­son beitti sér fyrir því að prests­sonur fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir að barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar teldi sterkar vís­bend­ingar liggja fyrir um að hann hefði mis­notað þær.

Tíu mest lesnu úttektir, afhjúpanir og rannsóknir Stundarinnar árið 2018

 

1 Hann saklaus en þær í sárum

Rann­sókn­ar­grein eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Agnes Bára Ara­dóttir og Elísabet Ásmunds­dóttir kærðu báðar vin­sælan fót­bolta­strák fyrir nauðgun. Ingi­björg Dögg ræddi við tólf konur frá Sauð­ár­króki sem kvört­uðu allar undan fram­göngu manns­ins og lýstu því hvernig hann fékk öll tæki­færin og starf­aði sem fyr­ir­mynd barna á meðan þær glímdu við afleið­ing­arnar. Stúlk­urnar sögð­ust hafa verið dæmdar af sam­fé­lag­inu, for­eldrar þeirra lýstu þögn­inni sem mætti þeim, en kærum á hendur mann­inum var vísað frá. Sjálfur sagð­ist mað­ur­inn ekki hafa verið neinn eng­ill og að hann hefði farið yfir mörk kvenna: „Já, alveg pott­þétt. Ég verð fyrstur til að við­ur­kenna það. Maður var algjört fífl, sko.“

Greinin var lesin 74.928 sinnum.

2 Uppljóstrarinn af Klaustri: „Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskraði“

Afhjúpun eftir Jóhann Pál Jóhanns­son.

„Ég er þessi Marvin sem rugg­aði bátnum,“ sagði Bára Hall­dórs­dóttir, sem var stödd fyrir til­viljun á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber og varð vitni að ógeð­felldum sam­ræðum þing­manna. „Ég varð bara svo sár og trúði varla því sem ég heyrði.“ Forseti Alþingis bað fatl­aða, hinsegin fólk og konur afsök­unar á ummælum þing­mann­anna, en Bára til­heyrir öllum þremur hóp­unum. Hún steig fyrst fram í við­tali við Jóhannn Pál, þar sem hún greindi frá atburð­unum á Klaustri og opn­aði sig um reynsl­una af því að vera öryrki og mæta skiln­ings­leysi og firr­ingu valda­mik­illa afla á Íslandi.

3 Þær kölluðu pabba „úlfinn“

Afhjúpun eftir Jóhann Pál Jóhanns­son.

Bragi Guð­brands­son hjá Barna­vernd­ar­stofu beitti sér fyrir því að prests­sonur fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir að barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar teldi sterkar vís­bend­ingar liggja fyrir um að hann hefði mis­notað þær. Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra vissi allt en hélt mál­inu leyndu fyrir Alþingi.

4 „Það tók mig bara tvo mánuði að lenda á götunni“

Úttekt eftir Gabríel Benjamin.

Móður tókst að missa börn sín, heim­ili, bíl og aleigu eftir að ánetj­ast mor­fíni og ríta­líni. Kristín steig fram í Stund­inni og sagði frá lífi í klóm fíknar og afleið­ingum þess. Um leið steig Bergur fram, maður sem hefur sprautað sig nán­ast dag­lega í tutt­ugu ár, og kallar fíkn­ina þræl­dóm.

5 Svipti sig lífi á geðdeild Landspítalans

Rann­sókn­ar­grein eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Sverrir Örn Sverr­is­son lést aðeins 26 ára gam­all á geð­deild Land­spít­al­ans, um sól­ar­hring eftir að eft­ir­lit með honum var lækkað með þeim til­mælum að hann ætti sjálfur að láta vita ef líð­anin versn­aði, jafn­vel þótt hann lýsti leiðum til sjálfs­vígs inni á deild­inni. Tíu dögum áður hafði annar ungur maður framið sjálfs­víg á geð­deild­inni, en spít­al­inn var­aði við umfjöllun um málið. „Við héldum að hann væri kom­inn á öruggan stað,“ sögðu bræður hans, sem greindu frá því hvað gerð­ist. 

Um leið var rætt við fag­fólk, bæði á Land­spít­al­anum og ann­ars staðar í kerf­inu, um ástandið í geð­heil­brigð­is­málum. 

6 Svona notuðu Bjarni Benediktsson og Engeyjar­fjölskyldan Íslands­banka

Rann­sókn­ar­grein eftir Inga Frey Vil­hjálms­son.

Bjarni Bene­dikts­son, nú fjár­mála­ráð­herra, stýrði fjár­fest­ingum fyr­ir­tækja­veldis föður síns og föð­ur­bróður á bak við tjöldin á árunum fyrir hrunið 2008. Eng­ey­ing­arnir voru ráð­andi hlut­hafar Íslands­banka og vék bank­inn ítrekað frá vinnu­reglum til að ganga erinda þeirra.

„Ég áskil mér allan rétt til að selja ekki næstum því strax BMW-inn sem ég er nýbú­inn að panta mér,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­festir og núver­andi fjár­mála­ráð­herra, í léttum dúr í tölvu­pósti til Einars Arnar Ólafs­sonar, vinar síns og þáver­andi starfs­manns Íslands­banka, og Hermanns Guð­munds­sonar, við­skipta­fé­laga síns, í tölvu­pósti í októ­ber árið 2005. 

7 Borgaði aldrei bæturnar eftir banaslysið

Úttekt eftir Jón Bjarka Magn­ús­son og Frey Rögn­valds­son.

Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, sigldi skemmti­bát sínum fullur upp á sker og olli með því dauða tveggja mann­eskja. Hann reyndi að koma sök­inni yfir á annað hinna látnu og greiddi aðstand­endum aldrei bætur.

Jónas sat áfram sem for­maður Sjó­manna­fé­lags Reykja­víkur, sem síðar varð Sjó­manna­fé­lag Íslands, eftir slysið og var end­ur­kjör­inn mót­fram­boðs­laust í nóv­em­ber 2005, tveimur og hálfum mán­uði eftir slysið. Hann var end­ur­kjör­inn í stjórn Norræna flutn­inga­verka­manna­sam­bands­ins í mars 2006, eftir að búið var að birta honum ákæru vegna slyss­ins. Eftir að dómur féll dró Jónas sig út úr þeim störfum. Hann losn­aði úr fang­elsi árið 2010 og sett­ist það sama ár í samn­inga­nefnd Sjó­manna­fé­lags Íslands. Jónas var kjör­inn for­maður félags­ins á nýjan leik árið 2012 og hefur setið á for­manns­stóli síðan.

8 „Hann er búinn að henda mér úr landi“

Afhjúpun eftir Gabríel Benjamín.

Starfs­fólk lýsir reiði­köstum og slæmri fram­komu eig­anda Guide to Iceland, sem er eitt helsta sprota­fyr­ir­tæki lands­ins. Meg Matich var rekin úr starfi sem rit­stjóri vef­blaðs­ins Guide to Iceland Now af eig­and­anum þegar hún nýtti ekki frí­tíma sinn í að skrifa fréttir fyrir fyr­ir­tækið.

9 Þvingaðar af sýslumanni til að umgangast föðurinn sem misnotaði þær

Rann­sókn­ar­grein eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

„Hæ, ... ég er níu ára. Þegar ég var lítil var ég mis­notuð af pabba mínum,“ segir í dag­bók­ar­færslu ungrar stúlku. Fimm ára greindi hún frá kyn­ferð­is­legri mis­notkun föður síns. Engu að síður var hún neydd til umgengni við hann. Í kjöl­farið braut hann líka á yngri systur hennar. Dætur manns­ins sögðu sög­una af því hvern­ing það er að vera barn í þessum aðstæðum í við­tali við Stundina. Gögn sýna að stúlk­urnar vildu ekki umgang­ast föður sinn og frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi bár­ust margoft til yfir­valda. Málið var aldrei með­höndlað sem barna­vernd­ar­mál, aðeins sem deilur for­eldr­anna um umgengni.

10 Barnaníðsmál prests gert upp með sáttafundi á skrifstofu biskups 

Úttekt eftir Inga Frey Vil­hjálms­son.

Þjóð­kirkjan þver­brýtur ítrekað eigin vinnu­reglur við með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar hefur gagn­rýnt biskup fyrir aðkomu að með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Rúmlega 60 ára gam­alt barn­a­níðs­brot prests hefði átt að fara til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar en biskup tók málið að sér og málið varð aldrei opin­bert. Árið 2015 var hald­inn sátta­fundur á skrif­stofu bisk­ups Íslands, Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, þar sem aldr­aður prestur bað konu fyr­ir­gefn­ingar á því að hafa ítrekað beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi þegar hún var 10 og 11 ára gömul. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár