Þvingaðar af sýslumanni til að umgangast föðurinn sem misnotaði þær

„Hæ, ... ég er níu ára. Þegar ég var lítil var ég mis­notuð af pabba mínum,“ segir í dag­bók­ar­færslu ungrar stúlku. Fimm ára greindi hún frá kyn­ferð­is­legri mis­notkun föður síns. Engu að síður var hún neydd til umgengni við hann. Í kjöl­farið braut hann líka á yngri systur hennar. Gögn sýna að stúlk­urnar vildu ekki umgang­ast föður sinn og frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi bár­ust margoft til yfir­valda. Málið var aldrei með­höndlað sem barna­vernd­ar­mál.

Þvingaðar af sýslumanni til að umgangast föðurinn sem misnotaði þær

„Ég man ekki eftir því að hann hafi sagt að hann elskaði mig án þess að tala í kjöl­farið um að hann hefði aldrei gert mér neitt. En hann hafði mis­notað mig, ég hef alltaf vitað það.“

Konan sem hér talar er 32 ára gömul, fædd árið 1986, dóttir sér­fræð­ings í ráðu­neyti. Við köllum hana Guðrúnu. For­eldrar Guðrúnar skildu í kjöl­far þess að hún sak­aði föður sinn um kyn­ferð­is­of­beldi. Í kjöl­farið upp­hófst deila um umgengni við dæt­urnar tvær. Dæturnar, sem fara fram á nafn­leynd, segja hér sögu sína. 

Móðir þeirra vildi í fyrstu að faðir þeirra héldi áfram að umgang­ast börnin en undir tak­mörk­unum og eft­ir­liti, en hann vildi ekki una því. Að lokum tók móðir þeirra þá afstöðu að stöðva þyrfti alla umgengni föð­ur­ins við dæt­urnar, en yngri systir hennar, sem hér eftir verður kölluð Helena, segir frá því hvernig faðir hennar mis­not­aði hana í þving­aðri umgengni. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár