Svipti sig lífi á geðdeild Landspítalans

Sverrir Örn Sverr­is­son lést 26 ára gam­all, um sól­ar­hring eftir að eft­ir­lit með honum var lækkað með þeim til­mælum að hann ætti sjálfur að láta vita ef líð­anin versn­aði, jafn­vel þótt hann lýsti leiðum til sjálfs­vígs inni á deild­inni. Tíu dögum áður hafði annar ungur maður framið sjálfs­víg á geð­deild, en spít­al­inn var­aði við umfjöllun um málið. „Við héldum að hann væri kom­inn á öruggan stað,“ segja bræður hans, sem greina frá því sem gerð­ist.

Sverrir Örn Sverr­is­son lét lífið á geð­deild Land­spít­al­ans þann 24. ágúst 2017, tíu dögum eftir að annar ungur maður hafði fyr­ir­farið sér á örygg­is­gangi geð­deildar. Í milli­tíð­inni hafði spít­al­inn ekki gripið til neinna ráð­staf­ana til að tryggja að slíkt gæti ekki end­ur­tekið sig og í svörum frá spít­al­anum er ekki tekin afstaða til þess hvort spít­al­inn geti tryggt öryggi sjúk­linga í sjálfs­vígs­hættu.

Fjöl­skylda Sverris stóð hins vegar í þeirri trú að hann væri í öruggum höndum inni á geð­deild og var full bjart­sýni varð­andi fram­haldið. „Það síð­asta sem ég sagði við bróður minn var að þetta væri eng­inn heimsendir, þetta væri bara byrj­unin á betra lífi,“ segir Ómar Örn Sverr­is­son, bróðir hans.

Saga sem þarf að heyrast

Saga Sverris ber vitni um brotala­mir í kerf­inu sem á að grípa fólkið okkar þegar það þarf mest á því að halda. „Eftir að hafa lesið sjúkra­skýrsl­urnar hans finnst mér greini­legt að það var ekki allt eins og það átti að vera varð­andi það hvernig var tekið á hans málum eða hvernig það end­aði. Sér­stak­lega ekki í ljósi þess sem gerð­ist nokkrum dögum áður,“ segir Heimir Sverr­is­son.

Bræð­urnir lýsa báðir furðu sinni á vinnu­brögðum, við­brögðum og aðbún­aði geð­deild­ar­innar. Fyrst Sverrir þurfti að deyja þá þurfa aðrir að fá að heyra hvernig þetta var.

„Því miður er þetta saga sem þarf að heyr­ast og er kannski bara ein af mörgum varð­andi þennan mála­flokk,“ segir Heimir. „Þetta er mála­flokkur sem mér finnst ekki nógu mikið unnið í og sinnt nógu vel. Þessi mál hafa setið á hak­anum og það er eig­in­lega alveg óþol­andi að ekki sé meira gert á þessu sviði í heil­brigð­is­kerf­inu. Þessi saga og fleiri þurfa að heyr­ast. Fólk þarf að átta sig á því hvað þetta ástand er alvar­legt,“ segir Heimir.

Hann er ekki einn um að hafa áhyggjur af ástand­inu hér á landi. Í fyrra steig þáver­andi land­læknir og núver­andi aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra fram og sagði geð­heil­brigð­is­kerfið nán­ast vera í molum.

Viðbrögð spítalans  

Aðeins degi eftir að Sverrir var met­inn í bráðri sjálfs­vígs­hættu var hann færður inn á almenna deild þar sem ástand hans þótti stöðugt. Næsta dag fannst hann lát­inn inni í her­bergi sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár