Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það tók mig bara tvo mánuði að lenda á götunni“

Móður tókst að missa börn sín, heim­ili, bíl og aleigu eftir að ánetj­ast mor­fíni og ríta­líni. Annar maður hefur sprautað sig nán­ast dag­lega í tutt­ugu ár, og kallar fíkn­ina þræl­dóm.

Kristín er á fer­tugs­aldri, móðir sem missti börnin sín eftir að hún ánetj­að­ist fíkni­efnum. Þrettán ár eru síðan hún greind­ist með endó­metríósu og tauga­sjúk­dóm og fékk í kjöl­farið mor­fín til að takast á við verk­ina. Til að byrja með not­aði hún lyfið aðeins til að verkja­stilla sig og kom­ast í gegnum dag­inn, en með tím­anum þró­að­ist það út í dag­neyslu og hún fór að kaupa lyfið dýru verði á göt­unni.

„Ég var alltaf með milljón hugs­anir, það var allt á fleygi­ferð í höfð­inu á mér og ég náði ekki að hafa stjórn á hugs­unum mínum. Ég var alltaf svo hrædd við að fólki myndi ekki líka vel við mig. Mér leið aldrei vel í eigin skinni.“ Svona lýsir Kristín þeim röddum sem áfengi og síðar mor­fín hjálp­uðu henni að þagga niður í. 

Fall hennar var harka­legt, en hún missti for­ræði á börnum sínum, heim­ili sitt og allar eigur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár