Bandarískur blaðamaður sleppur við brottflutning úr landi

Meg Matich var rekin úr starfi sínu hjá Guide to Iceland og sá fram á að þurfa að yfirgefa Ísland. Eftir að hún sagði Stundinni sögu sína höfðu nýir vinnu­veitendur hennar samband og buðu henni starf.

Meg Matich var lykil­starfsmaður hjá fyrir­tækinu Guide to Iceland þar sem hún ritstýrði og sá um þróun netmiðilsins Guide to Iceland Now! sem þýddi íslenskar fréttir yfir á ensku. Hún og margir aðrir fyrr­verandi starfs­menn lýstu fyrir Stundina reiði­köstum aðal­eiganda fyrir­tækisins.

Meg vann fyrir fyrir­tækið frá júní til loka september, en hún var rekin stuttu eftir að eigandinn sá að hún hafði ekki nýtt frítíma sinn til að skrifa fréttir fyrir vefmiðilinn. Hún ræddi við Stundina nokkrum dögum eftir uppsögnina þar sem hún lýsti ógnandi hegðun og reiði­köstum eigandans. Aðrir fyrr­verandi starfs­menn tóku undir lýsingar á hegðun eigandans, en enginn núverandi starfs­maður þorði að tjá sig af ótta við reiði hans.

Uppsögn jafngilti brottrekstri úr landinu

Í viðtalinu var saga Meg rakin, en hún er bandarísk og er menntuð úr hinum virta Columbia-háskóla. Þar vaknaði áhugi hennar á Íslandi, en hún heimsótti landið fyrst 2012 og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár