Túlkun forsætisnefndar: Þingmenn þurftu ekki að fylgja fyrirmælum um bílaleigubíla – skrifstofan enn að „innleiða“ reglurnar

Ákvæði siða­reglna alþing­is­manna, um að þeir skuli sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld sé í full­komnu sam­ræmi við reglur um þing­far­ar­kostnað, tók ekki til reglna um bíla­leigu­bíla þrátt fyrir að skrif­stofa þings­ins bæði þing­menn um að fylgja regl­unni.

Túlkun forsætisnefndar: Þingmenn þurftu ekki að fylgja fyrirmælum um bílaleigubíla – skrifstofan enn að „innleiða“ reglurnar

15. gr. siða­reglna alþing­is­manna, um að þeir skuli sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur um þing­far­ar­kostnað, tók ekki til regl­unnar um að þing­menn sem ækju meira en 15 þús­und kíló­metra á ári í starfi sínu skyldu not­ast við bíla­leigu­bíl.

Þetta er túlkun for­sætis­nefndar Alþingis sem hafn­aði í gær beiðni Björns Levís Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata um að fram færi rann­sókn á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­sonar og ann­arra þing­manna og ákvað að beina mál­inu ekki til ráð­gef­andi siða­nefndar.

Ástæða þess að for­sætis­nefnd telur þing­menn ekki hafa þurft að fylgja regl­unni um bíla­leigu­bíla er sú að skrif­stofa Alþingis er sögð enn hafa verið að „inn­leiða breyttar reglur“.

Inn­leið­ing­unni hafi ekki lokið fyrr en í febr­úar 2018, einmitt um það leyti sem upp­lýst var að nokkrir þing­menn hefðu fengið millj­ónir end­ur­greiddar umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gáfu til kynna að þeir ættu rétt til.

Hin frjáls­lega túlkun for­sætis­nefndar á 15. gr. siða­regln­anna að því er við­kemur regl­unni um bíla­leigu­bíla er athygl­is­verð, enda hefur skrif­stofa Alþingis greint frá því að þing­menn sem keyrðu meira en 15 þús­und kíló­metra árlega á eigin bif­reið, þvert á reglur um þing­far­ar­kostnað, hefðu ítrekað verið beðnir um að skipta yfir á bíla­leigu­bíl. Nokkrir hefðu kosið að gera það ekki og borið við að „þægi­legra“ væri að nota eigin bíl. 

Skrif­stofa Alþingis reikn­aði út og komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2016 að hag­kvæmara væri fyrir Alþingi að þing­menn sem ækju meira en 15 þús­und kíló­metra á ári not­uð­ust við bíla­leigu­bíl. Í kjöl­farið, í októ­ber 2016, var slíkt kíló­metra­mark sett inn í reglur for­sætis­nefndar um þing­far­ar­kostnað og þing­mönnum til­kynnt sér­stak­lega um breyt­ing­una. „Var það kynnt þing­mönnum, sér­stak­lega nýjum þing­mönnum, eftir kosn­ing­arnar 2016 og enn fremur eftir kosn­ing­arnar 2017, með tölvu­pósti til þeirra þing­manna sem það varð­aði,“ segir í grein­ar­gerð þing­skrif­stof­unnar frá 26. febr­úar síð­ast­liðnum.

„Alveg frá upp­hafi kjör­tíma­bils 2013 hefur verið haft sam­band við þing­menn sem aka mikið og þeir hvattir til að nota fremur bíla­leigu­bíla en eigin bif­reið ef hag­kvæmara hefur þótt. Sumir hafa brugð­ist við því og orðið við ábend­ingum en aðrir ekki. Hefur því verið borið við að miklu þægi­legra væri fyrir þing­menn að nota eigin bíl; oft færi saman akstur í þágu þing­starfs­ins og einka­akstur, bíla­leigu­bílar væru ekki nógu stórir og öfl­ugir til vetr­ar­ferða og afnota­réttur að bíla­leigu­bílum væri ekki nægi­lega skýr (einka­af­not, trygg­ingar o.s.frv.).“ 

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að þing­menn­irnir sem áttu í hlut hafi rætt við for­menn þing­flokka og for­seta og óskað eftir því að breyttri fram­kvæmd yrði frestað meðan farið yrði yfir athuga­semdir þeirra. Ekki er greint frá því hvort orðið hafi verið við þeirri beiðni. 

Björn Leví Gunn­ars­son hefur kreist fram upp­lýs­ingar um akst­urs­greiðslur þing­manna og kallað eftir rann­sókn.

Af nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar má þó ráða að nefndin telji þing­menn hafa haft sjálf­dæmi um hvort þeir fylgdu regl­unni um bíla­leigu­bíla. Þannig virð­ist 14. gr. siða­regln­anna – hið afdrátt­ar­lausa ákvæði um að þing­mönnum beri að „sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál“ – ekki hafa tekið til þeirrar reglu, að minnsta kosti ekki fyrr en eftir að „inn­leið­ingu“ regl­unnar lauk í febr­úar 2018.

Þann 22. febr­úar 2018 var svo reglum um bíla­leigu­bíla breytt. Í stað þess að kveðið sé á um að þegar þing­maður þurfi að aka meira en 15 þús­und kíló­metra skuli hann not­ast við bíla­leigu­bíl er reglan nú orðuð með eft­ir­far­andi hætti: „Ef áætla má að alþing­is­maður þurfi í starfi sínu að aka meira en svarar 15.000 km á ári á eigin bif­reið skal skrif­stofan láta honum í té bíla­leigu­bif­reið til afnota […]. Óski alþing­is­maður eigi að síður að nota eigin bif­reið falla greiðslur niður þegar 15.000 km-mark­inu er náð, svo og heim­ild til að nota bíla­leigu­bíl.“

Ásmundur Frið­riks­son hefur end­ur­greitt skrif­stofu Alþingis 178 þús­und krónur sem hann fékk vegna ferða sem hann fór um kjör­dæmi sitt með töku­fólki frá sjón­varps­stöð­inni ÍNN. Í bréfi sem hann sendi for­sætis­nefnd þann 23. nóv­em­ber við­ur­kennir Ásmundur að það hafi „orkað tví­mælis“ að hann fengi kostnað við ferð­irnar end­ur­greidd­ann. 

For­sætis­nefnd Alþingis telur hins vegar að ekk­ert hafi komið fram sem gefi til kynna að hátt­erni Ásmundar hafi verið and­stætt siða­reglum alþing­is­manna. Þá telur for­sætis­nefnd ekki ástæðu til að vísa mál­inu til ráð­gef­andi siða­nefndar og fela henni að meta hvort Ásmundur hafi brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum eða meg­in­reglum um hátt­erni.

Þingmenn Pírata gagn­rýndu máls­með­ferð­ina harð­lega á Alþingi í gær. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir sagði að Birni Leví hefði verið hótað því að hann yrði sjálfur lát­inn sæta ábyrgð sam­kvæmt siða­reglum fyrir að hafa sent inn erindið um að akst­urs­greiðslur þing­manna yrðu rann­sak­aðar. Var þess­ari frá­sögn ekki mót­mælt af þing­mönnum sem tóku þátt í umræð­unni. Forseti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, varði ákvörðun for­sætis­nefndar af hörku og sagð­ist vona að mál­inu væri lokið fyrir fullt og allt. 

Jón Þór Ólafsson, full­trúi Pírata í for­sætis­nefnd tók til máls og benti á að sam­kvæmt siða­reglum þing­manna bæru þeir að sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra væru í full­komnu sam­ræmi við reglur um slík mál, og að í reglum um þing­far­ar­kostnað á sínum tíma hefði komið fram að þegar alþing­is­maður þyrfti að fara meira en 15.000 km í starfi sínu skyldi hann fá afnot af bíla­leigu­bíl frá skrif­stofu Alþingis.

Stein­grímur J. Sig­fús­sonfor­seti Alþingis

„Hátt­virtur þing­maður Ásmundur Frið­riks­son við­ur­kennir í Kast­ljós­svið­tali, og það fylgir end­ur­skrift af þeim texta með þeim gögnum sem eru á vef Alþingis og eru opin­ber öllum, að skrif­stofan hafi komið til hans og sagt honum að fara á bíla­leigu­bíl en hann hafi ekki viljað það. Hann heldur því áfram að senda inn ósk um end­ur­greiðslur sem hann svo fær,“ sagði Jón Þór. „Það er klárt brot. Þetta er bara brot sam­kvæmt regl­unum. Það er öllum lands­mönnum ljóst sem vilja skoða það.  Þetta eru gögn máls­ins. Látum gögn máls­ins tala sínu máli.“

Stein­grímur svar­aði þessum athuga­semdum Jóns Þórs með eft­ir­far­andi hætti: „Hann [Ásmundur Frið­riks­son] er einn af svoköll­uðum heim­an­akst­urs­þing­mönnum og það er rétt að nokkrir þeirra voru enn að nota eigin bíla eftir að til­mæli um að taka bíla­leigu­bíla við 15.000 km mörkin voru komin fram, en skrif­stofan hefur útskýrt hvernig það mál er vaxið, að inn­leið­ingin hafi verið í gangi, og það er ekk­ert síður við það að sakast að for­sætis­nefnd og skrif­stofan höfðu ekki sett skýrar reglur um notkun slíkra bíla. Það er því alger­lega aug­ljóst mál að þeir þing­menn voru í góðri trú hvað þetta varðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár