Pólland klofið í herðar niður

Laga- og rétt­læt­is­flokk­ur­inn hefur und­an­farin ár sótt að dóm­stólum og fjöl­miðlum lands­ins. Rík­is­sjón­varpið er komið algjör­lega undir hæl stjórn­valda og þar eru gagn­rýnir blaða­menn teknir fyrir sem óvinir pólsku þjóð­ar­innar. Ráðandi öfl halda á lofti furðu­legum sam­sær­is­kenn­ingum.

Pólland klofið í herðar niður

Viðbrögð sendi­herra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszynski, við frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar af þátt­töku nýfasískra öfga­hópa í sjálf­stæð­is­göngu sem leið­togar lands­ins stýrðu í Varsjá þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, hafa vakið nokkra athygli, bæði í íslenskum fjöl­miðlum jafnt sem pólskum. Sendi­herr­ann sendi bréf á skrif­stofur for­seta, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra og Alþingis Íslend­inga, þar sem hann lýsti frétta­flutn­ingnum sem „fals­frétt“ sem gæti skaðað sam­skipti ríkj­anna tveggja, auk þess sem hann sak­aði Stundina um að hafa bendlað alla Pólverja „sem elska föð­ur­landið“ við fas­isma eða nas­isma. Viðbrögð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra voru þau að árétta að hér á landi ríkti fjöl­miðla­frelsi og utan­rík­is­ráðu­neytið svar­aði í þeim sama anda. 

Blaða­maður hefur und­an­farna daga átt fjöl­mörg sam­töl við Pólverja, búsetta á Íslandi sem og í Póllandi. Af þeim má ráða hve djúp­stæð gjá ríkir á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Popúlismi

Stundin fær hatursfull skilaboð vegna frétta um nýfasíska hópa: „Ég hræki í andlitið á þér“
FréttirPopúlismi

Stundin fær hat­urs­full skila­boð vegna frétta um nýfasíska hópa: „Ég hræki í and­litið á þér“

Rit­stjórn Stund­ar­innar hefur borist á fjórða tug skila­boða og sím­tala þar sem fjöl­mið­ill­inn er sagður vega að pólsku þjóð­inni með umfjöllun sinni um fasíska hópa sem tóku þátt í sjálf­stæð­is­göngu ásamt ráða­mönnum lands­ins. Sýn sendi­herra Póllands á Íslandi end­ur­ómar í þessum skila­boðum sem eru mörg hver ansi hat­urs­full.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár