Mynd: Shutterstock

Bolsonaro vefur Brasilíu um fingur sér

Jair Bol­son­aro hefur umturnað brasil­ískri orð­ræðu og þjóð­lífi á fyrsta ári sínu í for­seta­emb­ætti. Hann sakar fjöl­miðla um lygar og fals­fréttir en miðlar eigin tístum sem heilögum sann­leika. Stundin ræðir við unga Bras­il­íu­búa sem eiga erfitt með að sætta sig við að for­eldrar þeirra séu komnir á hans band.

Jair Messias Bol­son­aro kom sem storm­sveipur inn í brasil­ísku for­seta­kosn­ing­arnar síð­ast­liðið sumar. Maðurinn sem átti eftir að fá við­ur­nefnið Trump of the Tropics mál­aði sig upp sem utan­að­kom­andi ein­stak­ling sem væri óhræddur við að segja hlut­ina eins og þeir væru og ekki hluti af hinu spillta brasil­íska stjórn­mála­kerfi, þrátt fyrir að hafa setið á brasil­íska þing­inu í 27 ár. Þá vakti hann athygli fyrir harka­lega orð­ræðu sína gagn­vart ýmsum minni­hluta­hópum, frum­byggjum, inn­flytj­endum og sam­kyn­hneigðum, auk þess sem hann lof­aði stuðn­ings­mönnum sínum því að fara fyrir stærstu „hrein­gern­ing­ar­að­gerð“ í sögu lands­ins, sem fæli í sér að hand­taka og/eða reka vinstri­menn og fylg­is­menn Verka­manna­flokks­ins úr landi, nú eða hrein­lega drepa þá.

Bol­son­aro, sem hefur lýst aðdáun sinni á her­for­ingja­stjórn­inni sem stjórn­aði land­inu með harðri hendi á árunum 1964 til 1985 og pynt­aði þús­undir póli­tískra and­stæð­inga til dauða, bauð fram undir slag­orð­inu: „Brasilía ofar öllu, guð ofar öllum.“ Hann tal­aði fyrir kristnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Popúlismi

Stundin fær hatursfull skilaboð vegna frétta um nýfasíska hópa: „Ég hræki í andlitið á þér“
FréttirPopúlismi

Stundin fær hat­urs­full skila­boð vegna frétta um nýfasíska hópa: „Ég hræki í and­litið á þér“

Rit­stjórn Stund­ar­innar hefur borist á fjórða tug skila­boða og sím­tala þar sem fjöl­mið­ill­inn er sagður vega að pólsku þjóð­inni með umfjöllun sinni um fasíska hópa sem tóku þátt í sjálf­stæð­is­göngu ásamt ráða­mönnum lands­ins. Sýn sendi­herra Póllands á Íslandi end­ur­ómar í þessum skila­boðum sem eru mörg hver ansi hat­urs­full.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár