Jólatónleikar, drungalegir þunglyndistónar og marglaga skúlptúrar

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 23. nóv­em­ber - 6. des­em­ber.

Jólatónleikar, drungalegir þunglyndistónar og marglaga skúlptúrar

Þetta og svo margt fleira er að ger­ast næstu tvær vik­urnar.

Mótun

Hvar? i8
Hvenær? Til 12. jan­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í sýn­ing­unni Mótun er teflt fram sex lista­mönnum af yngri kyn­slóð­inni sem öll hafa verið virk í mynd­list­ar­líf­inu. Þau skoða mann­eskj­una og það umhverfi sem hún hefur mótað sér, hvort heldur sem er í arki­tektúr eða í heimi tækn­innar. Öll nálg­ast þau við­fangs­efnið með ólíkum hætti, hvort heldur sem er með ítar­legri rann­sókn eða með gáska og húmor.

Griðastaður

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 24. nóv­em­ber kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Griða­staður er ein­leikur um dauð­leik­ann, fjölda­fram­leiðslu hús­gagna, Billy-hillur, bældar til­finn­ingar, mömmur, sænskar græn­met­is­bollur, fyrr­ver­andi kærustur, krútt­legar skjald­bökur, ein­semd, sniðugar krydd­hillur, dauð­ann, Nockeby-sófa, lífið, sorg­ina og fleira. Sýningin er útskrift­ar­verk Matth­í­asar Tryggva Har­alds­sonar frá Lista­há­skóla Íslands, en hann er líka for­sprakki gjörn­ingar-hljóm­sveit­ar­innar Hatari.

PUP, Great Grief, Snowed In

Hvar? Húrra
Hvenær? 25. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Kanadíska pön­k­rokksveitin PUP („Pathetic Use of Potential“) leggur land undir fót og treður upp á Húrra með íslensku sveit­unum Great Grief og Snowed In. PUP hefur gefið út tvær plötur og unnið til fjölda verð­launa, meðal annnars Juno Awards, Polaris Music Prize, og CBC Bucky Awards. Það má búast við miklum ærsla­látum á þessum tón­leikum.

Innrás IV: Margrét Helga Sesseljudóttir

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? Til 6. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Þetta er fjórði og síð­asti hluti seríu sem er kölluð Innrás í Ásmund­ar­safn þar sem völdum verkum Ásmundar Sveins­sonar er skipt út fyrir verk starf­andi lista­manna. Margrét Helga Sess­elju­dóttir nýtir sér ýmsa miðla og efni í marglaga skúlp­t­úrum sínum. Nátt­úru­leg og per­sónu­leg nálgun hennar er hríf­andi og býður sam­tal hennar og verka Ásmundar áhuga­vert sjón­ar­horn.

Bell Witch, Vofa, Heift

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 28. nóv­em­ber kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Banda­ríska doom-sveitin Bell Witch hefur Evr­óputúr sinn á Íslandi, en sveitin mun flytja þriðju plötu sína, Mirror Reaper, í heild sinni með víd­eó­verki á þessum tón­leikum. Með þeim spilar huldu­sveitin Vofa, en með­limir hennar koma alltaf fram með hulin and­lit og spila dimma og drunga­lega þung­lynd­is­tóna. Heift er síðan yngsta svarta­málms-sveit lands­ins, en hún kom fyrst fram á Norð­an­paunki í ár.

Elli Grill útgáfupartí

Hvar? Húrra
Hvenær? 1. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Klikk­að­asti og grill­að­asti rapp­ari lands­ins, Elli Grill, gefur út nýju plötu sína, Pottþétt Elli Grill. Eins og vit­firr­ingur á ofsa­bræð­is­veg­inum býður Elli áhorf­endum að verða vitni að þessum trylltu tón­leikum, en honum til stuðn­ings koma líka fram Balatron og LaFontaine, auk leynig­ests. 

Prump í Paradís: Battlefield Earth

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 6. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Ein léleg­asta kvik­mynd sög­unnar, Battlefi­eld Earth, er byggð á fyrri hluta sam­nefndra skáld­sögu skap­ara Vís­inda­kirkj­unnar, L. Ron Hubbard. Kvik­myndin skartar John Travolta, sem er sjálfur með­limur í kirkj­unni, en hann eyddi millj­ónum doll­ara í gerð hennar. Myndin fjallar um upp­reisn mann­fólks­ins gegn geim­ver­unum Psychlos sem hafa yfir­ráð yfir jörð­inni.

Jólatónleikar með Ylju, Teiti Magnússyni & Elínu Ey

Hvar? Bryggjan Brugghús
Hvenær? 6. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ylja hefur verið virk í ára­tug og skapað sér sess í tón­list­ar­vit­und þjóð­ar­innar fyrir ljúfa tóna sína og sam­hljóm. Skegg­prúði þjóð­laga­töfra­mað­ur­inn Teitur Magn­ús­son var að gefa út aðra plötu sína, Orna, og er vís til að vera í fanta­formi fyrir þessa tón­leika. Trú­bador­inn Elín Ey mun líka munda gítar sinn og rödd á þessum þjóð­laga­jólatón­leikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár