Nýir neytendur inn á nútímavæddan dópmarkað

Blaða­maður ræddi við neyt­endur, sölu­menn og fag­að­ila um þróun og stöðu fíkni­efna­mark­að­ar­ins hér á landi. Kanna­bis­neysla hefur laðað að nýja neyt­endur og hefur við­geng­ist und­an­farið án stór­tækra aðgerða lög­reglu, að þeirra sögn. Ólögleg efni, lyf­seð­ils­skyld lyf og áfengi ganga kaupum og sölum á rúss­nesku sam­skipta­for­riti.

Nýir neytendur inn á nútímavæddan dópmarkað

Fíkni­efna­mark­að­ur­inn hér á landi hefur blómstrað síð­ustu miss­eri í takt við almennt ágæta stöðu í efna­hags­málum og tekið ýmsum breyt­ingum, sér­stak­lega hvað varðar aðgengi og dreif­ingu. Síðan 2014 hefur Hag­stofan reynt að mæla áhrif ólög­legrar starf­semi á hag­kerfið, hið svo­kall­aða dulda hag­kerfi. Var þá áætlað að ólög­leg fíkni­efna­sala ein og sér yki lands­fram­leiðsl­una um 0,26%, tölu­vert meira en smygl (0,13%) og vændi (0,08%). Þetta er hins vegar mjög erfitt að áætla og byggir alltaf á ófull­nægj­andi gögnum þar sem slík starf­semi er auð­vitað refsi­verð og fer fram að mestu undir rat­sjá yfir­valda. Verð á fíkni­efnum hefur hins vegar hald­ist ótrú­lega stöðugt og lækkað í sumum til­fellum. Blaða­maður fór á stúf­ana og ræddi stöðu mála og þró­un­ina við neyt­endur og sölu­menn þeirra helstu lyfja sem ganga kaupum og sölum á Íslandi í dag.

Kannabis

Kanna­bis­mark­að­ur­inn hefur tekið stakka­skiptum frá hruni. Áratugum saman var nán­ast …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár