„Ég er alveg jafn glórulaus um þetta og allir aðrir“

Rekstar­stjóri veitinga­hússins í Bragganum í Naut­hólsvík segir að umræða um kostnað við byggingarnar hafi ekki haft áhrif á reksturinn. Leigir húsnæðið af Háskólanum í Reykjavík sem aftur leigir af borginni.

Gerir ekki greinarmun á stráum
Gerir ekki grein­ar­mun á stráum Daði Agn­ars­son, sem rekur veit­inga­húsið Braggann, segir að hann geri ekki grein­ar­mun á því hvort strá fyrir utan bygg­ing­arnar séu mel­gresi eða annað. Mynd: Davíð Þór

Umfjöllun um gríðar­lega fram­úrkeyrslu hjá Reykja­víkurborg við endur­byggingu bragga í Naut­hólsvík hefur ekki haft áhrif á veitinga­rekstur sem nú er í bragganum, að sögn Daða Agnars­sonar, rekstrar­stjóra Braggans. Þó hefur umfjöllunin valdið því að afhending á hluta bygginganna, sem veitinga­húsið átti að fá til sinna nota, hefur tafist og mun væntanlega tefjast enn.

„Ég leigi þessa aðstöðu af Háskólanum í Reykjavík sem aftur leigir byggingarnar af borginni. Ég hef því í raun ekkert haft um það að segja hvernig þessar framkvæmdir hafa farið fram. Ég fékk að hafa puttana eilítið í innréttingum inni í bragganum en það var það eina. Borgin skilaði húsnæðinu í raun bara hvítu af sér þannig að háskólinn tekur á sig allan kostnað við innréttingar og stand­setningu. Það er því fyrir utan þær tölur sem hafa verið í umræðunni. „Þetta „náðhús“, sem er viðbyggt, það er hugsað sem partur af þessum veitinga­rekstri og er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár