Bankasýslan hótaði lögbanni á Arion til að koma í veg fyrir arðgreiðslur

Til umræðu kom að bank­inn greiddi út arð í formi hluta­bréfa sinna í Valitor. Banka­sýsla rík­is­ins taldi að bank­inn gæti farið á mis við millj­arða króna virði eign­ar­hluta síns með arð­greiðsl­unni.

Bankasýslan hótaði lögbanni á Arion til að koma í veg fyrir arðgreiðslur
Vildu nota hluta­bréf sem arð­greiðslur Hefðu hluta­bréf Arion banka í Valitor verið greidd út sem arður hefði bank­inn farið á mis við millj­arða króna virði hlutar síns í fyr­ir­tæk­inu að mati Banka­sýslu rík­is­ins.

Banka­sýsla rík­is­ins hót­aði því að fara fram á lög­bann á arð­greiðslur til hlut­hafa Arion banka í upp­hafi þessa árs þar eð þær brytu gegn samn­ingi íslenska rík­is­ins við bank­ann og Kaupskil, dótt­ur­fé­lag Kaup­þings. Umræddar arð­greiðslur áttu að vera í formi hluta­bréfa Kaup­þings í dótt­ur­fé­lagi þess, greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Valitor Holding. Að mati Banka­sýsl­unnar hefði það getað valdið því að Arion banki væri á mis við 20 til 40 pró­sent af virði eign­ar­hlutar síns í greiðslu­korta­fé­lag­inu ef arður hefði verið greiddur út með hluta­bréfum þess. Þar með hefði bank­inn getað orðið af millj­örðum króna. Íslenska ríkið átti þar til í febr­úar á þessu ári 13 pró­senta hlut í bank­anum.

Frétta­blaðið greinir frá þessu og byggir á minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra frá 13. jan­úar. Þar kemur fram að það var mat Banka­sýsl­unnar að fjár­festa­hóp­ur­inn sem keypti um 30 pró­senta hlut í Arion banka í mars í fyrra, sem sam­an­stóð af fjár­fest­ing­ar­bank­anum Goldman Sachs og þremur vog­un­ar­sjóðum, hefði ásætlst Valitor sér­stak­lega og hafi verið áfram um að bank­inn greiddi arð út með þessum hætti, með hluta­bréfum í Valitor.

Það var mat Banka­sýsl­unnar að yrði hlutur Arion banka í Valitor greiddur út sem arður myndi bank­inn fara á mis við um 20 til 40 pró­sent af virði eign­ar­réttar síns á móts við það sem ger­ast myndi ef korta­fé­lagið væri selt í heild og í opnu ferli. Var í því sam­hengi bent á nýlegar sölur á fyr­ir­tækjum í svip­uðum rekstri og að þær hefðu farið þannig fram að félögin hafi verið seld í heilu lagi. Þá var jafn­framt bent á mjög umdeilda sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun árið 2014 sem for­dæmi sem ekki ætti að fylgja.

Banka­sýslan greindi jafn­framt Arion banka frá því að full­trúi hennar í stjórn bank­ans myndi greiða atkvæði gegn söl­unni. Taldi Banka­sýslan sig jafn­framt hafa neit­un­ar­rétt við umræddri til­lögu um arð­greiðslur. Fór svo að fallið var frá umræddum arð­greiðslum enda taldi stjórn bank­ans ekki heppi­legt að fara fram í and­stöðu við vilja íslenskra stjórn­valda í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár