Flúði undan framakapphlaupinu til Argentínu

Sigríður Dóra fór út fyrir þæg­ind­ara­mmann alla leið til Argent­ínu eftir háskóla­nám. Hún býr þar með kærasta sínum og lýsir minni yfir­borðs­kennd en hún fann fyrir á Íslandi.

Sigríður Dóra
Sigríður Dóra Skilaði BA rit­gerð­inni sinni og hélt svo út til Argent­ínu.

Sigríður Dóra sló til og flutti til Argent­ínu um leið og hún var búin að skila BA- rit­gerð sinni í félags­fræði. Hún hefur búið þar nú í rúma tvo mán­uði og lýsir dvöl­inni sem tals­verðri breyt­ingu frá íslenskum hvers­dags­leika. 

„Ég fór til Argent­ínu árið 2014 í skipti­nám og var þar í smá tíma. Mig lang­aði ekk­ert að fara aftur heim en ákvað að gefa því séns. Hélt alltaf að ég myndi breyta um skoðun en það gerð­ist aldrei, mig lang­aði bara til þess að fara aftur út.

Það eru auð­vitað margar ástæður fyrir því að ég ákvað loks­ins að fara og allt það, en í grunn­inn var það and­rúms­loftið heima sem mér fannst bara orðið frá­hrind­andi, þetta enda­lausa frama­kapp­hlaup sem leiðir mann ekk­ert, til­hugs­unin að fara beint í fram­halds­nám og taka íbúða­lán fyllti mig von­leys­is­til­finn­ingu og mér leið eins og lífið yrði búið,“ segir hún.

„Hér er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár