50 tillögur til að fækka sjálfsvígum

Stjórn­völd kynntu nýlega aðgerð­ar­á­ætlun sem á að leiða til umbóta í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. 25 millj­ónir króna eru eyrna­merktar í áætl­un­ina.

Ríflega tvö­falt fleiri falla fyrir eigin hendi á Íslandi en láta lífið í umferð­inni og sjálfs­víg eru langal­geng­asta dán­ar­or­sök ungra karl­manna. Þrátt fyrir það hefur lengi staðið á fjár­veit­ingum til for­varna­verk­efna og geð­heil­brigð­is­mála almennt.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra til­kynnti nýlega að hún hefði sam­þykkt allar 50 til­lögur starfs­hóps sem vann aðgerð­ar­á­ætlun til að fækka sjálfs­vígum á Íslandi. Sem komið er hefur ráð­herra aðeins eyrna­merkt þessu verk­efni 25 millj­ónir króna, eða 500 þús­und á hverja til­lögu. Kostn­aður við að inn­leiða allar þessar metn­að­ar­fullu til­raunir myndi þó frekar hlaupa á millj­örðum og ekki er ljóst hvenær eða hvernig til­lög­urnar verða fjár­magn­aðar.

Sjö skip­uðu hóp­inn: Tveir verk­efna­stjórar Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, fag­stjóri sál­fræði­þjón­ustu hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, yfir­læknir BUGL, yfir­læknir öryggis- og rétt­ar­geð­þjón­ustu Land­spít­ala og félags­þjón­ustu­full­trúi frá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Tillögur þeirra, alls 50 tals­ins eins og áður segir, eiga að stuðla að fækkun sjálfs­víga í mjög víðum skiln­ingi. Þær taka á öllu frá rótum vand­ans …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár