„Fjármálaráðherra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gefast upp“

Verkalýðs­foringjar gagnrýna fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar harðlega.

Ragnar Þór Ingólfsson
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Stundin

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur þær kjara­bætur sem felast í fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar heldur rýrar. Drífa Snædal, framkvæmda­stjóri Starfs­greina­sambandsins, er sama sinnis og Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, segir  frum­varpið valda vonbrigðum. Allt of lítið sé gert fyrir vinnandi fólk. 

„Persónu­afsláttur hækkar um 539 kr. Hluta af skertum barna­bótum skilað til baka. Vörugjöld á bensín og bifreiðar hækka. Vaxta­bætur lækka um 600 milljónir. Heild­salar og framleiðslu­fyrirtæki eru að hækka verð. Krónan hefur veikst um 7-8% gagnvart USD og Evru frá 1. ágúst. Seðla­bankinn hótar vaxta­hækkunum verði launa­hækkanir umfram 4%. Fjármála­ráðherra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gefast upp.“ Þannig kemst Ragnar Þór að orði á Facebook.

„Kynslóðirnar á undan náðu fram, með þrot­lausri baráttu, öllum þeim réttindum og lífsgæðum sem við þekkjum í dag. Hvernig samfélagi ætlum við að skila til afkomenda okkar? Ætlum við að skila af okkur samfélagi betri lífskjara eða vera kynslóðin sem taldi lífs­kjara­baráttuna snúast um okkur sjálf eða hvað er í þessu fyrir mig á meðan innviðir samfélagsins molna undan okkur?“ skrifar Ragnar Þór. „Ætlum við að láta þetta yfir okkur ganga eða standa saman í að bæta lífskjör þannig að við getum búið í samfélagi þar sem hægt er að lifa með mannlegri reisn af dagvinnu­launum og fá ekki lífstíðar fátæktardóm ef eitthvað kemur upp á?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir hjá Eflingu sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hækkun persónu­afsláttarins og barna- og vaxtabóta væri alltof lítil og aukning hússnæðis­stuðnings snautleg. Drífa Snædal, sem hefur boðið sig fram til forseta Alþýðu­sambandsins, fer líka hörðum orðum um fjár­laga­frumvarpið.

„Metnaðar­leysið til að bæta
lífskjör og jafna stöðu fólks algert“

„Fjár­laga­frumvarpið gefur okkur litlar væntingar um að stjórn­völd ætli sér að standa með vinnandi fólki. Þvert á móti er metnaðar­leysið til að bæta lífskjör og jafna stöðu fólks algert,“ skrifar Drífa. „Þau skemmdar­verk sem hafa verið unnin jafnt og þétt á skatt- og bóta­kerfunum síðustu ár eru ekki leiðrétt sem neinu nemur og hinir ósnertanlegu, þeir sem greiða sér arð af sameiginlegum auðlindum og vinnu­framlagi eru enn jafn stikk frí þegar kemur að því að leggja í sameiginlega sjóði. Það er ljóst að verkalýðs­hreyfingin hefur verk að vinna í vetur og eina vonin til þess að snúa af braut ójafnaðar er sameinuð hreyfing.“

Verkalýðs­foringjarnir hafa boðað harða kjara­baráttu á komandi vetri. Þórarinn G. Pétursson, aðal­hagfræðingur Seðla­bankans, sagði á fundi hjá Félagi atvinnu­rekenda í gær að ef hugmyndir um stór­felldar almennar launa­hækkanir yrðu að veruleika gæti Seðla­bankinn vart annað en hækkað vexti til að halda aftur af verðbólgu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­viðræður stranda á forsendu­ákvæðum og breið­fylkingin fundar um mögulegar verkfalls­aðgerðir

Formaður VR fékk í gær samþykkta heimild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylkingarinnar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan viðsnúning er að ræða frá því að kjara­viðræður hófust fyrst. Nú hafa viðræðurnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um forsendu­ákvæði í langa­tíma­kjara­samningnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó hamingjan milli breið­fylkingarinnar og Samtaka atvinnu­lífsins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­baráttunni nú en síðustu misseri. Viðsemjendur ætluðu að taka höndum saman og auka stöðug­leika í efnahags­lífinu. En svo heyrðist lítið af framgangi. Í þessari viku var viðræðum slitið og deilunni vísað til ríkis­sátta­semjara. Margir klóruðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eiginlega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár