Umhverfisráðherra Vinstri grænna tjáir sig ekki um dráp á fágætum hval

Guðmundur Ingi Guðbrandsson ætlar ekki að tjá sig um frétt Stundarinnar. Lítið fer fyrir andstöðu Vinstri grænna við hval­veiðar eftir stjórnar­myndunina með Framsókn og Sjálfstæðis­flokki.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, ætlar ekki að tjá sig um að afar fágætur hvalur hafi verið veiddur við Íslands­strendur og landað í Hvalfirði aðfara­nótt sunnudags.

Stundin falaðist eftir viðtali við Guðmund vegna málsins en þeirri bón var hafnað.

Í svari ráðuneytisins segir að hval­veiðar, Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa heyri undir sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra og því lægi beinna við að heyra í Kristjáni Þór Júlíussyni.

„Háum upp­hæðum af opin­beru fé hefur
verið kastað á glæ til að styrkja þessa
áhuga­menn um hval­veið­ar.“ 

Guðmundur gegnir ráðherra­embætti í umboði Vinstri grænna en flokkurinn samþykkti árið 2015 að berjast fyrir stækkun griða­svæðis hvala og verndun dýralífs í landinu og gerði það að einu stefnu­mála sinna.

Í samþykkt lands­fundar Vinstri grænna sagði árið 2015: „Við veið­arnar er beitt ómann­úð­legum veiði­að­ferðum til að við­halda áhuga­máli örfárra útgerð­ar­manna. Háum upp­hæðum af opin­beru fé hefur verið kastað á glæ til að styrkja þessa áhuga­menn um hval­veið­ar. Nú er mál að linn­i.“ Þá hafa Katrín Jakobs­dóttir og Svandísar Svavars­dóttir, ráðherrar Vinstri grænna, sagt hval­veiðar ósjálfbærar.

Eftir að Vinstri græn gengu í ríkis­stjórn með Sjálfstæðis­flokknum og Framsóknar­flokknum hefur farið minna fyrir andstöðu flokksins við hval­veiðar.

Nýlega lögðu tíu þingmenn fram þings­ályktunar­tillögu um að Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra yrði falið að „end­ur­meta hval­veiði­stefnu Íslend­inga og greina þjóð­hags­legt mik­il­vægi veið­anna. Við matið verði m.a. horft til hags­muna ann­arra atvinnu­greina eins og ferða­þjón­ustu og sjáv­ar­út­vegs og til­lit tekið til vís­inda­rann­sókna, dýra­vernd­ar­sjón­ar­miða og hags­muna sveit­ar­fé­laga.“

Aðeins tveir þingmenn Vinstri grænna standa að tillög­unni, þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, en þau greiddu bæði atkvæði gegn myndun ríkis­stjórnar með Sjálfstæðis­flokki og Framsóknar­flokki.

Reglugerð um hvalveiðar ekki breytt

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Vakið var máls á hval­veiðum í tvígang í maí síðastliðnum. Í fyrra skiptið spurði Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, þingkona Viðreisnar, Katrínu, hvort Vinstri græn væru enn á móti hval­veiðum og ef svo væri hvort þau myndu beita áhrifum sínum í ríkis­stjórn til þess að stöðva veiðarnar.

Katrín sagði að hval­veiði­kvótinn væri gefinn út til fimm ára og yrði endur­skoðaður í haust. „Það er sérstök ákvörðun að ganga inn í það og snúa við fyrri ákvörðun, sem ég er ekki viss um að standist,“ sagði Katrín.

Katrín sagði brýnt væri að áður en ný kvóta­ákvörðun yrði tekið yrði að fara fram mat á umhverfis­áhrifum hvalveiða, samfélags­legum áhrifum og efnahags­legum. Matið þyrfti að byggjast á hugmynda­fræði sjálf­bærrar þróunar og skoðað hvort eðlilegt væri að halda áfram hval­veiðum við Íslands­strendur eða ekki. Þá sagði hún Vinstri græn standa við sína stefnu.

Síðar í maí beindi Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, fyrir­spurn til Guðmundar Inga þar sem hann spurði hvert eitthvað hefði breyst í stefnu Vinstri grænna varðandi friðun hvala. „Ef ekkert hefur breyst, hvernig hefur flokkurinn þá beitt sér í ríkis­stjórn?“

Guðmundur Ingi svaraði eins og Katrín að veiðarnar byggðu á ákvörðun sem tekin væri með reglugerð frá árinu 2013 og gilti út árið 2018. „Hvað varðar ríkis­stjórnina og áframhald á veiðum þá er það nokkuð sem engin ákvörðun hefur verið tekin um, en búið er að ákveða að ráðast í úttekt á því hvaða áhrif veiðarnar hafa efnahags­lega á atvinnu­vegi, fleiri en bara þann sem hér um ræðir,“ sagði Guðmundur jafnframt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár