Reykjavíkurborg ætti að útvega dagforeldrum húsnæði á hóflegu verði

Tillögur starfs­hóps um breyt­ingar og þróun dag­for­eldra­þjón­ustu gera ráð fyrir að ýtt verði undir að dag­for­eldrar starfi tveir og tveir saman.

Reykjavíkurborg ætti að útvega dagforeldrum húsnæði á hóflegu verði
Dag­for­eldra­kerfi við hlið ung­barna­deilda Samkvæmt til­lögum starfs­hóps á að beita ýmsum leiðum til að styrkja dag­for­eldra­kerfið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Reykja­vík­ur­borg ætti að stuðla að því með mark­vissum hætti að fjölga þeim dag­for­eldrum sem starfa tveir og tveir saman. Það væri meðal ann­ars hægt að gera með því að bjóða dag­for­eldrum hús­næði í eigu borg­ar­innar á hóf­legu leigu­verði undir dag­gæsl­una.

Þetta er meðal til­lagna um end­ur­skoðun og þróun á dag­for­eldrra­þjón­ustu í Reykja­vík sem starfs­hópur um málið hefur skilað. Meðal ann­arra til­lagna sem starfs­hóp­ur­inn leggur til eru að nið­ur­greiðslur til dag­for­eldra hækki í áföngum þannig að kostn­aður for­eldra með börn hjá dag­for­eldrum verði sam­bæri­legur við það ef börn eru á leik­skóla. Lagt er til að mið­ur­greiðsl­urnar verði hækk­aðar um fjórð­ung í fyrsta áfanga, um tæpar 14 þús­und krónur á mán­uði. Skúli Helgason, for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs segir að ekk­ert sé hægt að nefna um tíma­set­ingar í þessum efnum, fara verði yfir til­lög­urnar og meta kostnað við þær og taka umræðu áður en slíkt verði hægt. Skúli segir jafn­framt að á fundi skóla- og frí­stunda­ráðs í gær hafi verið sam­þykkt að láta sviðs­stjóra vinna inn­leið­ing­ar­á­ætlun sem komi til með­ferðar á næsta fundi ráðs­ins í ágúst. Með slíkri inn­leið­ing­ar­á­ætlun verði til­lög­urnar end­an­lega kostn­að­ar­metnar, þeim for­gangs­raðað og eftir atvikum áfanga­skipt.

Þá er lagt til að veittur verði 200 þús­und króna aðstöðu­styrkur árlega til dag­for­eldra til að mæta kostn­aði við hús­næði og aðbún­aðar. Sömu­leiðis verði veittur 300 þús­und króna stofn­styrkur til að ýta undir nýliðun í starfs­stétt­ini.

Auk þessa verði fram­lög borg­ar­innar hækkuð vegna grunn­nám­skeiðs fyrir verð­andi dag­for­eldra, að dag­for­eldrar fái greiddan kostnað vegna slysa­varna- og eld­varn­ar­nám­skeiða og að ýtt verði undir símenntun og fag­legt sam­starf við leik­skól­ana.

Aðrar til­lögur starfs­hóps­ins snúa að því að bæta upp­lýs­inga­gjöf af hálfu dag­for­eldra, að ytra mati og öryggi í starf­sem­inni, ráð­gjöf og mið­lægri inn­ritun barna til dag­for­eldra.

Reykja­vík­ur­borg hefur á und­an­förnum miss­erum opnað ung­barna­deildir við leik­skóla í borg­inni og stefnt er að því að enn fleiri slíkar taki til starfa á þessu ári. Í haust er stefnt að því að fjórtán slíkar verði starf­andi, við tíu leik­skóla. Spurður hvort að það sé fram­tíð í því að breyta dag­for­eldra­kerf­inu í þessu sam­hengi og hvort ekki standi til að opna ung­barna­deildir í öllum leik­skólum borg­ar­innar svarar Skúli hvoru tveggja ját­andi. „Það er stefnan að bjóða upp á ung­barna­deildir í öllum leik­skóla­hverfum. Við erum hins vegar að koma til móts við að þarfir for­eldra eru mis­mun­andi. Mikill meiri­hluti for­eldra kýs að vera með sín börn á leik­skólum en það er ákveð­inn, umtals­verður hópur sem að velur frekar að dag­for­eldra val­kost­inn ef báðir eru í boði. Það er tölu­verður munur á greiðslum sem inna þarf af hendi og því er mjög rök­rétt til­laga starfs­hóps­ins að hækka greiðslur til dag­for­eldra, þó að til­lagan um hækk­un­ina sé býsna rót­tæk. Við höfum nálg­ast þetta þannig að það sé mik­il­vægt að for­eldrar hafi val um hvorn kost­inn þeir taki og því sé mik­il­vægt að bæði kerfi séu til á sama tíma.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár