Við­skiptin hringd inn í Kaup­höll­inni Margir for­stjórar fyr­ir­tækj­anna sem skráð eru í Kaup­höll­inni hafa hækkað í launum frá 2015. Mynd: mbl/Golli

Ofurlaun forstjóra vekja ólgu í aðdraganda kjarasamninga

Launa­hæstu for­stjórar lands­ins eru með yfir 100 millj­ónir króna í árs­laun. Fjár­magnstekjur sumra for­stjóra námu tugum millj­óna í fyrra. Formaður VR segir atvinnu­lífið og stjórn­völd bera mikla ábyrgð á launa­skriði efsta lags þjóð­fé­lags­ins.

Launa­hæstu for­stjórar fyr­ir­tækj­anna í Kaup­höll­inni þéna yfir 100 millj­ónir á ári í launa­tekjur einar. Aðrir þiggja tug­millj­ónir króna í fjár­magnstekjur til við­bótar við laun sín, gjarnan sem arð úr fyr­ir­tækj­unum sem þeir stjórna. Formaður VR segir fólkið í land­inu búið að fá algjör­lega nóg af launa­mis­rétti.

Lang­launa­hæsti for­stjór­inn er Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar. Mán­að­ar­laun hans sam­kvæmt árs­reikn­ingi nema rúmum 18,5 millj­ónum króna, en félagið var skráð úr íslensku Kaup­höll­inni síð­asta haust. Næst á eftir koma Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, með tæpar 8,7 millj­ónir króna á mán­uði, og Gylfi Sig­fús­son, for­stjóri Eimskips, með tæpar 8,6 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríka Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár