Elítan hópast saman

Fólkið sem hagn­ast mest og tekur helstu ákvarð­anir í íslensku sam­fé­lagi safn­ast saman á ákveðin svæði. Helstu aðilar í Eng­eyj­a­rætt­inni fengu 920 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur í fyrra.

Fjórir af tekju­hæstu Garð­bæ­ing­unum búa hlið við hlið við sömu göt­una í bænum. Þetta er í sam­ræmi við nið­ur­stöður rann­sókna, að eigna­mestu, tekju­hæstu og valda­mestu ein­stak­ling­arnir safn­ist saman á sama búsetu­svæði.

Um fimm­tíu ein­stak­lingar í Garðabæ þén­uðu sam­an­lagt rúma 8 millj­arða í fjár­magnstekjur árið 2017. Sama ár runnu sam­tals einn og hálfur millj­arður fjár­magnstekna til sjö ein­stak­linga á Sel­tjarn­ar­nesi.

Eins og fram kom í rann­sókn­ar­grein um elítu­myndun sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla í fyrra er atvinnu­lífs- og við­skipta­el­ítan á Íslandi að miklu leyti búsett í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi. Álagn­ing­ar­skrár rík­is­skatt­stjóra stað­festa þetta og sýna að stærstu greið­endur fjár­magnstekju­skatts í Garða­bænum búa margir hverjir í sömu hverf­unum, í sömu göt­unum og jafn­vel í sama íbúða­kjarn­anum. Til að mynda er fjórir af stærstu fjár­magnstekju­skatt­greið­end­unum Garða­bæjar búsettir hlið við hlið á Arn­ar­nes­inu.

Meðalfjármagnstekjur elítunnar um 165 milljónir króna á ári

Þær 218 fjöl­skyldur sem til­heyrðu tekju­hæsta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríka Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár