Ríkasta Ísland græðir á tá og fingri Mann­eskja á lág­marks­launum væri 576 ár að vinna sér inn árs­tekjur Sigríðar Vil­hjálms­dóttur útgerð­ar­konu. Kristján Loftsson, sem var stjórn­ar­for­maður HB Granda á síð­asta ári, hafði þá álíka háar tekjur og allt fisk­vinnslu­fólk fyr­ir­tæk­is­ins til sam­ans.

Ríka Ísland

0,1 pró­sentið, útgerð­ar­auð­ur­inn, for­stjór­arnir og stríðið gegn jafn­ari skipt­ingu kök­unnar.

Þær 218 fjöl­skyldur sem til­heyra rík­asta 0,1 pró­sent­inu á Íslandi áttu rúman 201 millj­arð í hreinni eign árið 2016 sam­kvæmt skatt­fram­tals­gögnum rík­is­skatt­stjóra, eða 6,3 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna. Það er að með­al­tali 923 millj­óna eign á hverja fjöl­skyldu sem til­heyrir hópnum. Raunar er raun­veru­legt verð­mæti eign­anna tals­vert meira í ljósi þess að í opin­berum gögnum eru hluta­bréf talin á nafn­virði en ekki mark­aðsvirði. 

Margir þeirra sem til­heyra eigna­mesta 0,1 pró­senti lands­manna voru einnig á meðal tekju­hæstu Íslend­ing­anna árin 2016 og 2017 og þén­uðu hund­ruð millj­óna í formi fjár­magnstekna. Alls féllu 48,9 millj­arða tekjur í skaut tekju­hæsta 0,1 pró­sents lands­manna árið 2016, þar af 33 millj­arða króna fjár­magnstekjur, eða að með­al­tali 224 millj­óna heild­ar­tekjur á fjöl­skyldu og 151 millj­ónar fjár­magnstekjur. 

Sam­bæri­legar tölur fyrir síð­asta ár liggja ekki fyrir, en álagn­ing­ar­skrár rík­is­skatt­stjóra sem voru opnar almenn­ingi fyrri hluta júní gefa ágæta mynd af þeirri gríð­ar­legu auð­söfnun sem átti sér stað hjá tekju- og eigna­mesta fólki lands­ins í fyrra. Þetta er við­fangs­efni ítar­legrar umfjöll­unar sem birt­ist í nýja tölu­blaði Stund­ar­innar. Umfjöll­unin verður birt í nokkrum hlutum hér á vefnum. 

Um leið og gjald­endum fjár­magnstekju­skatts fækk­aði um 12 pró­sent milli ára voru tekjur af skatt­inum 21 pró­sentum hærri en í fyrra. Um 40 pró­sent fjár­magnstekn­anna sem urðu til árið 2017 voru í formi arðs, eða 56,4 millj­arðar, meðan sölu­hagn­aður nam 45,3 millj­örðum. Þar af var sölu­hagn­aður vegna hluta­bréfa 38,4 millj­arðar og rann allur til 3.682 fjöl­skyldna. Restin eru leigu­tekjur og vextir en fæstir greiða fjár­magnstekju­skatt af vaxta­tekjum í ljósi þess að frí­tekju­mark slíkra tekna nemur 150 þús­und krónum á ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríka Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár