Hefja söfnun í minningu Ingu Daggar: „Get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig“

Vin­ir hjón­anna Ingu Dagg­ar Krist­ins­dótt­ur og Vé­steins Val­garðs­son­ar hafa haf­ið söfn­un til styrkt­ar fjöl­skyld­unni, eft­ir að hún lést í kaj­ak­slysi og Skorra­dals­vatni. Frá­fall henn­ar er högg fyr­ir fjöl­skyld­una en hjón­in áttu sam­an tvo syni, fjög­urra og tveggja ára.

Hefja söfnun í minningu Ingu Daggar: „Get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig“

Söfnun er hafin til stuðnings fjölskyldu Ingu Daggar Kristinsdóttur sem lést í kajakslysi á Skorradalsvatni þann 29. apríl. 

Inga Dögg var 44 ára gömul þegar hún lést og lét eftir sig eiginmann, Véstein Valgarðsson, og tvo syni, fjögurra og tveggja ára. Fráfall hennar var mikið högg fyrir fjölskylduna og kallar á miklar breytingar á högum þeirra. 

„Nístandi sár og erfið helgi að baki,“ skrifaði Vésteinn í maí, eftir kistulagningu, minningarstund og útför Ingu Daggar. „Konunnar minnar, ástarinnar minnar, lífsvörunautar míns og mömmu litlu glókollanna okkar.“

Ströndin skartaði sínu fegursta

Inga Dögg var frá Skarði á Skagaströnd. Í færslunni sagði Vésteinn að Skarðsströnd hafi skartað sínu fegursta þegar hún var jarðsungin. „Sólin skein blítt þótt loftið væri kalt, himininn felldi samt nokkur tár þegar þau síðustu höfðu signt sig yfir kistuna. Fegurð náttúrunnar og rík sagan í kirkjunni, sem Inga hafði sýnt svo mörgum, voru eins og heiðursvörður. Ernir flugu meira að segja yfir.“

„Ég get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig, vegna litlu, móðurlausu drengjanna okkar“

Hann sagðist ekki geta lýst því hvernig honum leið að sjá konu sína borna út í kistu og ofan í gröf af elskandi ástvinum sem harma fráfall hennar. „Ég get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig, vegna litlu, móðurlausu drengjanna okkar.“ 

Sagði hann að fólkið þeirra gæfi þeim þrek og von. 

Fyrsta ferð sumarsins

Áður hafði Vésteinn greint frá fráfalli Ingu Daggar. Þar lýsti hann notalegri hádegisstund þeirra hjóna sem fóru út að borða, ræddu draum og plön. „Ýmsar þrengingar undanfarinnar ára virtust vera að leysast, það virtist vera að rofa til og það var góður hugur í okkur. Tilhlökkun, von og bjartsýni.“

Inga Dögg hafi verið í góðu skapi þegar hún renndi á kajak út á Skorradalsvatn. Hún vissi ekkert skemmtilegra en að veiða fisk á kajak. „Þetta var fyrsta ferð sumarsins. Þetta var líka sú síðasta.“

Hún skilaði sér ekki þangað þar sem þau ætluðu að hittast. „Konan mín, ástín mín, var örend í vatninu.“

Ætluðu að hefja búskap

Í yfirlýsingum frá vinum fjölskyldunnar, sem standa að söfnuninni, segir að Inga Dögg hafi verið náttúruunnandi, bæði á sjó og landi. Eyjar Breiðafjarðar voru hennar paradís.

Hún var tannsmiður að mennt en vann lengst af við umönnun fatlaðra.

Síðustu árin bjó hún á Hvanneyri í Borgarfirði þar sem Vésteinn eiginmaður hennar nam búfræði, en framundan hjá þeim hjónum var að hefja búskap. 

Nánari upplýsingar um söfnunina má finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • FÁÐU MARKAÐSGREININGAR OG VIÐSKIPTAMERKI SEM ERU HÖNNUÐ TIL AÐ HJÁLPA ÞÉR AÐ VERA UPPLYST/UR. HAFIÐ SAMBAND VIÐ ALFRED Í GEGNUM TELEGRAM (Alfredthoms) FYRIR ÓKEYPIS AÐSTOÐ.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár