Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins

Lög­mað­ur­inn Guðrún Björg Birg­is­dóttir starf­aði sem ráðs­maður fólks sem svipt hafði verið fjár­ræði og er sökuð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari segir mein­tan fjár­drátt hennar vera til með­ferðar hjá emb­ætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
Ólafur Hauksson Hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festir að mál Guðrúnar sé til með­ferðar hjá emb­ætt­inu. Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

Grunur leikur á um að Guðrún Björg Birg­is­dóttir lög­maður hafi ekki aðeins milli­fært fé úr dán­ar­búi konu á eigin reikn­ing heldur einnig nýtt sér stöðu sína sem ráðs­maður ein­stak­linga sem sviptir höfðu verið fjár­ræði til að draga sér fé.

Guðrún fór með fjár­mál minnst tveggja skjól­stæð­inga Reykja­vík­ur­borgar sem vel­ferð­ar­svið segir hafa upp­lifað brot á trausti við fregnir um rann­sókn máls­ins.

Eins og Heim­ildin greindi frá í gær hefur Guðrún, sem stofn­aði og rak lög­manns­stof­una Logia, verið kærð fyrir fjár­drátt upp á tæpar 13 millj­ónir króna úr dán­ar­búi konu sem hún var skipta­stjóri í. Hún hefur einnig verið til­kynnt af skipta­stjóra til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rök­studds gruns um auðg­un­ar­brot í tengslum við rekstur Logia sem nú er til gjald­þrota­skipta.

Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festir í sam­skiptum við Heim­ild­ina að kæra hafi borist vegna máls …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu