Fjölskylda Bjarna enn tengd Hval þegar hann gaf veiðileyfi

Föð­ur­systir Bjarna Bene­dikts­sonar var ein af tíu stærstu hlut­höfum Hvals hf. þegar hann gaf félag­inu umdeilt leyfi til hval­veiða. Hvalur keypti eigin bréf fyrir hálfan millj­arð á meðan hlutur dán­ar­bús föður Bjarna dróst saman. „Það eru engir nákomnir ætt­ingjar mínir sem hafa hags­muni hér,“ sagði Bjarni, sem áður taldi sig van­hæfan í málum félags­ins vegna vensla.

Fjölskylda Bjarna enn tengd Hval þegar hann gaf veiðileyfi
Bjarni Bene­dikts­son Nokkrum dögum eftir kosn­ingar úthlut­aði Bjarni Hvali leyfi til veiða sem hann hafði áður talið sig van­hæfan til að veita. Hann hætti í stjórn­málum en stýrir nú Samtökum atvinnu­lífs­ins. Mynd: Samtök atvinnulífsins

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og nú fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, taldi sig van­hæfan haustið 2024 til að afgreiða umsókn Hvals hf. um veiðar á lang­reyðum þar sem vensla­maður hans ætti sér­stakra og veru­legra hags­muna að gæta af úrlausn máls­ins.

Tveimur vikum seinna, nokkrum dögum eftir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sögu­lega lágt fylgi í alþing­is­kosn­ingum og var á leið í stjórn­ar­and­stöðu, sagði Bjarni hins vegar ástæður fyrir van­hæf­inu ekki lengur til staðar og veitti Hval fimm ára leyfi til veiða, sem end­ur­nýj­ast sjálf­krafa á hverju ári. Hann sagði náskylda ætt­ingja ekki eiga í félag­inu.

Nýr árs­reikn­ingur Hvals hf. sýnir hins vegar að Guðrún Sveins­dóttir, föð­ur­systir Bjarna, er á meðal stærstu hlut­hafa Hvals með 1,78% hlut og óbreyttan fjölda bréf frá fyrra ári. Árs­reikn­ing­ur­inn er fyrir tíma­bilið 1. októ­ber 2024 til 30. sept­em­ber 2025 en leyfið veitti Bjarni 5. des­em­ber 2024.

Þá sýnir árs­reikn­ing­ur­inn að eign­ar­hlutur dán­ar­bús föður Bjarna, Bene­dikts Sveins­sonar, …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Hvenær var virðisaukaskattur á fólksflutninga, sem þá voru ekki undanþegnir virðisaukaskatti, t.d. hópferðaakstur, lækkaður úr 24% í 11%, sama skattþrep og t.d. matvæli? Getur verið að það hafi verið árið 2015?
    2
    • GRR
      Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
      Já, það var árið 2015.
      En hver skyldi hafi verið fjármálaráðherra þá og komið þessum breytingum á? Einhver sem átti beinna hagsmuna að gæta?
      Varla. Slíkt gerist ekki á Íslandi, eða hvað?
      1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þegar allir eru vanhæfir er enginn vanhæfur því þá eru allir jafn hæfir...
    -2
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Sori
    2
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Og hvað með það. Kv.Siggi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár