Brugðið á leik til að tækla einmanaleikann

Félags­leg ein­angrun og ein­mana­leiki 105 ára gam­allar frænku Stefáns Arnar Stef­áns­sonar varð honum inn­blástur að loka­verk­efni sínu í vöru­hönnun við LHÍ. Hann hann­aði fyrir hana hlut á mörkum leik­fangs og hljóð­færis, sem býður upp á skemmti­legan leik í erf­iðum aðstæðum.

Brugðið á leik til að tækla einmanaleikann
Stefán og amma hans Hönnun Stefáns, Hljóð­færir­inn, mun fram­vegis ferð­ast á milli heim­ilis Dóru frænku hans og ömmu hans, þar sem það mun gegna hlut­verki leik­fangs fyrir gesti og gang­andi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Á dög­unum iðuðu Kjar­vals­staðir af sköp­un­ar­krafti og frum­leika þegar útskrift­ar­hópar úr arki­tektúr, mynd­list, vöru­hönnun, graf­ískri hönnun og fata­hönnun við LHÍ sýndu afrakstur vinnu sinnar í vetur. Nemendur úr vöru­hönnun unnu sín útskrift­ar­verk undir hatti mennsk­unnar, sem þeir reyndu að end­ur­spegla á einn eða annan hátt. Þeirra á meðal var Stefán Örn Stef­áns­son en verk hans, Hljóð­færir­inn, naut verð­skuld­aðrar athygli á sýn­ing­unni. Því má líkja við gamla dósa­sím­ann sem margir þekkja, í þró­aðri útgáfu. „Við vinnum vel saman í þessum árgangi, þannig að við ákváðum að vinna loka­verk­efnin sem eina heild, þrátt fyrir að skila ein­stak­lings­verk­efnum. Ég ákvað að skoða sér­stak­lega ell­ina, vegna þess að ég vona að ég verði ein­hvern tím­ann gam­all maður sjálfur og mig langar til að und­ir­búa það vel. Ég ákvað að rýna svo­lítið í það hvernig líf aldr­aðra er í dag til að skoða hvernig megi bæta það. Ég var fljótur að koma að ein­mana­leika í ell­inni, sem er stórt vanda­mál í nútíma­sam­fé­lagi. Það leiddi mig til Dóru frænku minnar.“

Leið til að tækla einmanaleikann

Dóra Ólafs­dóttir, frænka Stefáns, verður 106 ára í sumar. Hún nýtur enn mann­legra sam­skipta en það sem helst stendur henni fyrir þrifum er að hún á erfitt með að eiga í sam­ræðum. „Ég spurði hana út í ýmis­legt varð­andi það að verða gam­all. Þegar talið barst að ein­mana­leik­anum komst ég að því að hennar helsti vandi er að hún getur ekki átt sam­töl við annað fólk á elli­heim­il­inu, því hún er farin að heyra svo illa. Þetta greip mig og mig lang­aði strax til þess að hjálpa henni frænku minni og öðrum í svip­aðri stöðu.“

Þegar Stefán var að velta því fyrir sér hvers konar vöru hann gæti hannað, sem gæti nýst til að draga úr ein­mana­leika, setti hann sér nokkrar reglur. Fyrsta reglan var sú, að hlut­ur­inn sem úr yrði mætti ekki vera tækni­lega flók­inn. Hann vildi líka að hlut­ur­inn væri kunn­ug­legur, að fólk gæti notað hann án þess að honum fylgdu útskýr­ingar eða leið­bein­ingar. Hann mátti heldur ekki minna á lækn­inga­tæki, því Stefán vildi að hann yrði not­aður við léttar og skemmti­legar aðstæður, en ekki þving­aðar. Nið­ur­staðan varð útfærð útgáfa af dósa­sím­anum, sem margir kann­ast við að hafa búið til eða prófað í æsku. „Ég bjó til form sem bæði passar vel að eyr­anu og til að tala í og setti rör á milli. Ég fín­stillti svo verk­færið til að fá eins góðan hljóm og ég gat,“ útskýrir Stefán.

„Þegar talið barst að ein­mana­leik­anum komst ég að því að hennar helsti vandi er að hún getur ekki átt sam­töl við annað fólk á elli­heim­il­inu, því hún er farin að heyra svo illa.“

Varð fallegur af sjálfu sér

En það var ekki nóg að hlut­ur­inn hefði góðan hljóm. Hann þurfti líka að líta vel út. „Það var mér frá upp­hafi mik­il­vægt að grip­ur­inn liti vel út, eins og fal­legt hljóð­færi, því þá væri honum beitt sem slíku. En þrátt fyrir þá kröfu voru lín­urnar í honum alltaf að elta fúnk­sjón, það er að segja að ég var allan tím­ann að elta besta formið til að tala í og til að hlusta úr. Hann varð þess vegna eig­in­lega svona fal­legur af sjálfu sér. Svo leit­aði ég að þeim viði sem gæfi réttu til­finn­ing­una, þyngd­ina og áferð­ina.“

TækiðÚtkoman var form­fögur.

Eftir hug­mynda­vinnu, pæl­ingar, smíðar og sam­setn­ingu fékk verk­færið nafnið Hljóð­færir. „Þetta er miklu frekar hljóð­færi sem tveir ein­stak­lingar spila saman á, geta átt ein­lægt sam­tal í gegnum og jafn­vel brugðið á leik með. Þótt ég hafi upp­haf­lega hugsað þetta sem verk­færi sem gæti nýst fólki með heyrn­ar­skerð­ingu tók sú hug­mynd breyt­ingum í ferl­inu. Þetta getur nefni­lega nýst fleirum og verið góð leið til að eiga í sam­skiptum. Mig lang­aði að hlut­ur­inn myndi nýt­ast til að auð­velda þessar aðstæður og létta þær, að hann gæti jafn­vel nýst til þess að brjóta ísinn í erf­iðum aðstæðum. Að geta brugðið á leik og átt sam­tal í gegnum Hljóð­fær­inn reyn­ist örugg­lega sumum létt­ara heldur en að setj­ast niður og hefja sam­tal.“

Margir vilja eignast tækið

Á fyrr­nefndri sýn­ingu útskrift­ar­nem­enda á Kjar­vals­stöðum var nokkuð stöð­ugur straumur fólks að horn­inu hans Stefáns, þar sem hann bauð gestum að prófa Hljóð­fær­inn. For­eldrar og börn, pör og vinir á öllum aldri skemmtu sér þar kon­ung­lega og gamlir dósa­síma­taktar fengu að njóta sín. Þar fékk Stefán stað­fest­ingu á að grip­ur­inn skilar sínu hlut­verki. „Það var svo gaman að fylgj­ast með fólki, því allir voru svo skemmti­lega hissa að sjá þetta virka, að heyra hvað hljóm­ur­inn er skýr úr honum. Það voru þónokkrir sem lýstu yfir áhuga á að eign­ast svona tæki,“ segir Stefán, sem er einmitt í því ferli núna að skoða að hefja fram­leiðslu á gripnum. „Það var gaman að heyra að margir voru að velta þessu fyrir sér sem gjöf handa afa sínum eða ömmu sinni. Svo kom þarna líka eldra fólk sem gat hugsað sér að eiga þetta og nota sjálft. Það gladdi mig. Þegar sam­talið er byrjað að vera erfitt út af heyrn­inni er þetta aðgengi­legt tæki til að eiga.“

Framvegis í vöfflukaffi hjá ömmu

Meðfram námi und­an­farin ár hefur Stefán starfað hjá stoð­tækja­fram­leið­and­anum Össuri við að búa til spelkur. Hann þekkir því vel sjálfur hversu mik­il­vægt það getur verið að búa til hjálp­ar­tæki sem láta fólki ekki líða eins og sjúk­lingum. Hann segir reynsl­una af starfi hjá Össuri auk fyrri mennt­unar í fram­leiðslu­tækni hafa nýst vel í nám­inu við Lista­há­skól­ann. „Ég fór í Lista­há­skól­ann til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn. Þessi þrjú ár hafa gefið mér mikið, þau hafa styrkt mig í öllum lestri og ákvarð­anir sem ég tek eru allar úthugs­aðri og dýpri. Það var líka gott að koma aftur í skóla og fá tæki­færi til að leika sér, gera til­raunir og rekast á veggi.“

Hann segir það hafa verið skemmti­lega stund þegar hann sýndi Dóru frænku afrakst­ur­inn, Hljóð­fær­inn sjálfan. „Dóra heyrði skýrt í honum og maður þurfti ekki að tala mjög hátt, þannig að þetta virk­aði framar björt­ustu vonum. Þetta var líka skemmti­legt og það var greini­legt að henni fannst þetta gaman,“ segir Stefán og bætir við að fram­vegis muni frum­ein­tak Hljóð­fær­is­ins ferð­ast frá einu vöfflu­kaffi til ann­ars, milli ömmu hans og Dóru frænku, þar sem það muni von­andi halda áfram að skapa skemmti­legar stundir og efla tengsl á milli fólks í fjöl­skyld­unni á öllum aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár