Deilurnar í sænsku akademíunni: „Valdabarátta sem slær við leikriti eftir Shakespeare“

Harðar deilur hafa geisað í sænsku aka­dem­í­unni und­an­farna mán­uði vegna Jean Claude Arnault, eig­in­manns eins nefnd­ar­manns­ins, og kyn­ferð­is­of­beldis hans. Ritari nefnd­ar­innar, Sara Danius, sagði af sér eftir deilur við Horace Engdahl og fylg­is­menn hans. Fyrr­ver­andi eig­in­kona Engdahls, Ebba Witt Bratt­ström, stillir deil­unum upp sem bar­áttu karla og kvenna, hins gamla og hins nýja.

Deilurnar í sænsku akademíunni: „Valdabarátta sem slær við leikriti eftir Shakespeare“
Álits­gjafi um fyrr­ver­andi eig­in­mann sinn Ebba Witt Bratt­ström hefur verið einn af álits­gjöf­unum og greind­unum um stöð­una í sænsku aka­dem­í­unni en hún er fyrr­ver­andi eig­in­kona Horace Engdahl sem leiddi hall­ar­bylt­ing­una gegn Söru Danius.

„Þegar maður metur þá djúp­stæðu óein­ingu sem komin er upp í Aka­dem­í­unni getur maður ekki kom­ist að neinni annarri nið­ur­stöðu en að Sara Danius sé sá sem tek­ist hefur verst upp í starfi sínu sem rit­ari frá árinu 1786,“ sagði Horace Engdahl, með­limur í sænsku nóbelsaka­dem­í­unni, í grein í sænska blað­inu Expressen fyrr í vik­unni þar sem hann fjall­aði um þá stöðu sem komin er upp í nefnd­inni í kjöl­farið á afhjúp­unum sem tengj­ast #Metoo-bylt­ing­unni. Þrír með­limir aka­dem­í­unnar, rit­höf­und­ur­inn Klas Östergren, pró­fess­or­inn Kjell Espmark og sagn­fræð­ing­ur­inn Peter Englund hættu í aka­dem­í­unni út af mál­inu í lok síð­ustu viku. Sænska aka­dem­ían er þekkt­ust fyrir að veita nóbels­verð­launin á hverju ári.    

Málið sem kom upp innan aka­dem­í­unnar snýst um sam­starf nefnd­ar­innar við eig­in­mann eins með­lims hennar, Katarinu Frostens­son, sem áreitt hefur fjölda kvenna kyn­ferð­is­lega um ára­tuga­skeið. Maðurinn, Jean-Claude Arnault, rak sam­komu­stað í mið­borg Stokk­hólms sem fékk fjár­styrki frá Sænsku aka­dem­í­unni og voru haldnar upp­á­komur á vegum hennar á staðnum, sem kall­að­ist Forum.

Hneykslið í mál­inu hvað varðar aka­dem­í­una snýst um það að upp­lýs­ingar um hegðun Arnaults gagn­vart konum, sem meðal ann­ars hefur verið kærður fyrir nauðgun auk þess sem fjöldi kvenna hefur stigið fram og lýst því hvernig hann hefur ráð­ist að þeim með kyn­ferð­is­legum hætti, komu inn á borð til nefnd­ar­innar fyrir 20 árum síðan en ekk­ert var gert í mál­inu. Það var ekki fyrr en sænska blaðið Dagens Nyheter fjall­aði um Arnault sem nefndin hætti sam­starfi við hann á seinni hluta síð­asta árs og fékk lög­manns­stofu til að gera úttekt á mál­inu. 

„Valda­bar­átta sem slær við leik­riti eftir Shakespe­are“ 

Slær Shakespe­are viðÁ for­síðu Dagens Nyheter í dag segir að valda­bar­áttan og drama­tíkin í aka­dem­í­unni sænsku slái sjálfum Shakespe­are við.

Deilt um brottrekstur Frostenson 

Í kjöl­far þess að lög­fræði­stofan skil­aði nið­ur­stöðu sinni til aka­dem­í­unnar í síð­ustu viku, þar sem meðal ann­ars var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að erfitt væri að sanna að Arnault hefði framið kyn­ferð­is­brot í laga­legum skiln­ingi og sem hægt væri að ákæra hann fyrir, ákvað nefndin að kjósa um hvort víkja ætti Katarinu Frosten­son frá sem með­limi nefnd­ar­innar.  Inn í þá ákvörðun spil­aði að lög­manns­stofan benti á að Arnault hefði lík­lega í sjö til­fellum lekið upp­lýs­ingum um við­tak­anda nóbels­verð­laun­anna í bók­menntum, vænt­an­lega vegna þess að Frostens­son sagði honum frá því fyr­ir­fram, en hægt er að nýta slíkar upp­lýs­ingar í fjár­hags­legum til­gangi með því að veðja á nið­ur­stöð­una hjá veð­mála­fyr­ir­tækjum. 

Meiri­hluti nefnd­ar­innar, meðal ann­ars áður­nefndur Horace Engdahl og sjö aðrir til, greiddi atkvæði með því að hún fengi að halda áfram í nefnd­inni. Sara Danius greiddi hins vegar atkvæði gegn því auk fimm nefnd­ar­mann­ann­ana sem völdu í kjöl­farið að hætta í nefnd­inni. Staðan var því 8-6.

Danius og Frostensson hætta

Í kjöl­far þess skrif­aði Horace Engdahl svo grein­ina í Expressen þar sem veitt­ist að Söru Danius og sagði að þre­menn­ing­arnir sem hættu í nefnd­inni kynnu ein­fald­lega ekki að tapa og að um væri að ræða „örvænt­ing­ar­fulla valda­bar­áttu“ hjá Söru Danius. 

Í kjöl­far þess­arar greinar Engdahls var alveg ljóst hvað var í gangi í nefnd­inni: Tvær fylk­ingar höfðu mynd­ast sem deildu. Yfir annarri fylk­ing­unni er Sara Danius og aðrir sem vildu reka Katarinu Frosten­son úr nefnd­inni og fyrir hinni fer Horace Engdahl og aðrir nefnd­ar­með­limir sem vildu það ekki. 

Í gær var svo greint frá því að Sara Danius væri hætta í aka­dem­í­unni eftir langan fund í gær­kvöld þar sem reynt var að kom­ast að nið­ur­stöðu. Katarina Frostens­son mun einnig hætta í aka­dem­í­unni og var mál­inu stillt upp þannig í fjöl­miðlum að um væri að ræða samn­ing þess efnis að bæði Danius og Frostens­son myndu hætta. Þar með má segja að í bili alla veg­anna Horace Engdahl og fylg­islið hafi haft betur í valda­bar­átt­unni við Danius og þá með­limi akdem­í­unnar sem nú þegar hafa hætt. 

Stóru mis­tök Danius eru kannski þau að hafa staðið fyrir atkvæða­greiðslu um brott­rekstur Frostens­son og að greiða atkvæði með því að hún hætti. Þar með var enn frekar aukið á óein­ingu aka­dem­í­unnar og erfitt er fyrir for­mann slíkrar nefndar að sitja áfram ef hann er á annarri skoðun en meiri­hluti nefnd­ar­innar. En starfs­lok hennar eru að mörgu leyti ósann­gjörn þar sem hún hefur ein­ungis setið í aka­dem­í­unni í fimm ár og ber enga ábyrgð á Jean Claude Arnault, öfugt við til dæmis Horace Engdahl sem lyfti honum upp, studdi hann og hefur varið hann.  

Sá sem allt snýst umJean Claude Arnault er mað­ur­inn sem deilan snýst um á end­anum. Á þriðja tug kvenna hafa stigið fram og lýst kyn­ferð­is­legri áreitni hans.

Góður vinur Arnaults

Inn í valda­bar­átt­una spilar sú stað­reynd að Horace Engdahl er góður vinur Jean-Claude Arnaults og var hann sjálfur rit­ari sænsku nóbelsaka­dem­í­unnar stóran hluta þess tíma sem nefndin veitti honum fjár­hags­styrki, frá 1999 til 2009. Gagn­rýnin á sam­starf nóbels­nefnd­ar­innar við Arnault bein­ist því meðal ann­ars að Engdahl sjálfum en eftir að málið kom upp í lok árs í fyrra var grafið upp bréf frá 2006 sem Engdahl skrif­aði meðal ann­ars undir þar sem hann mælti með því að Arnault fengi lista­manna­laun út lífið frá sænska rík­inu. Arnault er samt ekki lista­maður heldur skipu­lagði hann menn­ing­ar­við­burði í ein­hverjum mæli. Engdahl skrif­aði undir bréfið ásamt öðrum, meðal ann­ars Per Wästberg úr sænsku nóbelsaka­dem­í­unni. Ævi­launin fékk Arnault þó ekki.

Þá var það einnig rifjað upp hvernig Horace Engdahl mærði Jean-Claude Arnault í við­tali við sænska blaðið Dagens Nyheter árið 2016 en þar var Arnault sagður „lífstíls­fyr­ir­mynd“ Engdahls og gefið í skyn að Engdahl liti upp til Frakkans. „Hann lifir hinu ljúfa lífi, hann er næstum því sá eini sem gerir það, sá eini sem býr yfir skiln­ingi. Hann ætti að gera Forum að stíl­skóla fyrir unga man: verðið ekki hip­sterar, verðið herra­menn!,“ sagði Engdahl í við­tal­inu og er ljóst að hann lítur nokkuð upp til Arnaults og lífs­stíls hans. 

Vitnisburðir margra kvenna

Lof Engdahls hljómar ein­kenni­lega þegar litið er til þess hvernig margar konur hafa lýst sam­skiptum sínum og Arnaults. Segja má að þeir lýs­ingar bendi til þess að Arnault sé hálf­gert skrímsli í kyn­ferðis- og sið­ferð­is­efnum. Enn liggur ekki fyrir hvort Engdahl vissi af þess­ari hátt­semi vinar síns eða ekki. 

Í nóv­em­ber í fyrra stigu fjöl­margar konur fram og sögðu frá því hvernig Arnault hefði komið fram við þær. Blaða­konan Lena van Hoopen sagði til dæmis að Arnault hafi komið að henni í Bóka­mess­unni í Gauta­borg og káfað á henni og sagt við hana, þegar hún brást ókvæða við: „Með þessu attitúdi verður þú ekki lengi í menn­ing­ar­brans­anum. Veistu ekki hverri ég er giftur?“ Hoopen vissi ekk­ert hvaða maður þetta var á þessum tíma. Þá sagði rit­höf­und­ur­inn Gabriella Håkons­son sam­bæri­lega sögu af Arnault. Í fer­tugs­af­mæli árið 2007 kom hann að henni og greip í kyn­færi hennar í votta við­ur­vist. „Það var engin aðdrag­andi að þessu, ekk­ert daður eða neitt slíkt. Hann bara tróð hönd­inni beint upp í klofið á mér,“ sagði hún.

Og nú bæt­ast við fleiri sögur. Í Dagens Nyheter á fimmtu­dag­inn sagði lista­konan Ann-Karin Bylund frá því hvernig Arnault kom fram við hana á tíunda ára­tugnum. Anna-Karin sendi bréf með lýs­ingum sínum til sænsku aka­dem­í­unnar þar sem hún lýsti því hvernig Arnault flek­aði hana og kall­aði hana „píku­lista­mann“ þegar hún sýndi verk eftir sig í Forum á tíunda ára­tugnum. Bylund sagði að Arnault hefði meðal ann­ars látið hana sjálfa greiða fyrir kostnað við upp­setn­ingu sýn­ingu sinnar þrátt fyrir að vera meðal ann­ars fjár­magn­aðar af sænsku nóbelsaka­dem­í­unni. Í bréf­inu kemur meðal ann­ars fram að Arnault hafi sagt við Bylund að hún væri bara „lítil textíl­stelpa sem væri útskrifuð úr léleg­asta skóla Sví­þjóðar og að hún ætti að vera honum þakk­lát fyrir að sýna verk hennar“.  Þannig not­aði Arnault valda­stöðu sína, meðal ann­ars út af sam­starf­inu við aka­dem­í­unni, í sam­skiptum við konur. 

„Sara Danius er tákna nýrra tíma 
og þeir eru tákn hins gamla“ 

Bylund mælti með því við aka­dem­í­una að Arnault yrðu ekki veittir frek­ari fjár­hags­styrkir þar sem hann mis­not­aði stöðu sína til að kom­ast yfir og lít­il­lækka ungar konur. Sænska aka­dem­ían gerði hins vegar ekk­ert með bréf Bylund og hélt áfram sam­vinn­unni við Arnault.  

Fyrrverandi eiginkona Engdahl kemur til sögunnar

Staðan í mál­inu lítur því þannig út að átta manna Engdahl-liðið í aka­dem­í­unni stendur vörð um eig­in­konu Arnaults og er að reyna að lág­marka skað­ann í mál­inu, eftir að hafa líka staðið á bak við Arnault sjálfan að hlut til í öll þessi ár, á meðan fámennt Danius-liðið – með fyrsta kven­kyns rit­ara aka­dem­í­unnar í 250 ára sögu hennar – stendur á móti því. 

Eðlilega er staðan því hlaðin kyn­bundnum og kyn­ferð­is­legum spurn­ingum þar sem Engdahl stóð vörð um og lyfti Arnault til skýj­anna og bjó til skjól fyrir hann til að mis­nota aðstöðu sína, meðal ann­ars að nota íbúð sænsku aka­dem­í­unnar undir ásta­líf sitt fram­hjá eig­in­konu sinni. 

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Engdahls, bók­mennta­pró­fess­or­inn Ebba-Witt Bratt­ström, er ein þeirra sem hefur verið fengin til að greina stöð­una í aka­dem­í­unni en hún og fyrr­ver­andi maður hennar hafa gagn­rýnt hvort annað opin­ber­lega um nokk­urra skeið eftir að sam­band þeirra end­aði með látum. Bratt­ström er femínisti og hefur látið þung orð falla um Engdahl sem hún segir vera karl­rembu og lýsir sem hálf­gerðu skrímsli í sam­skiptum, meðal ann­ars í bók um hjóna­band þeirra sem kom út í hitteð­fyrra og hún titl­aði Ást­ar­stríð ald­ar­innar og kölluð var skáld­saga. 

Bratt­ström segir að deilan í sænsku aka­dem­í­unni sé „síð­asta stríðið“. „Þetta er lík­lega síð­asta stríð. Engdal-liðið á móti Danius-lið­inu. Þetta er síð­asta atlaga menn­ing­ar­k­ar­ls­ins gegn menn­ing­ar­kon­unni. Það er þetta sem við sjáum. Mér finnst þetta töfr­andi. Ótrúlega hressandi. Betra en Netflix.“

Bratt­ström er ein þeirra sem hefur farið fyrir umræð­unni um „menn­ing­ar­k­ar­l­inn“ (s. Kult­ur­mannen) og þá karl­rembu og kven­fyr­ir­litn­ingu sem henni finnst ein­kenna sænskt menn­ing­ar­líf. Erfitt er að lesa Bratt­ström án þess að tengja allt sem hún segir beint við eig­in­mann hennar fyrr­ver­andi. „Mér finnst gott að sjá að Engdahl-liðið opin­berar sig. Þeir virð­ast ekki alveg skilja stöð­una, virð­ast ekki átta sig á umheim­inum. Þeir halda að þeir geti stillt sér upp og predikað. Sara Danius er tákn nýrra tíma og þeir eru tákn hins gamla. Þetta snýst um hjð nýja á móti hinu gamla,“ segir Bratt­ström en Sara Danius hefur verið tákn nýrra tíma í starfi sínu sem rit­ari. Hún hefur verið alþýð­legri en fyr­ir­renn­arar sínir, verið mjög áber­andi í fjöl­miðlum og meðal ann­ars tekið þátt í pan­el­kosn­ingu um besta sæta­brauðið (semlur) á síðum Dagens Nyheter og skrifað greinar um tísku og kjóla í sænsk blöð. Og hún er kona. 

Rauði þráðurinn í málinu er kynbundinn

Rauði þráð­ur­inn í þessu máli er því í raun kyn­bund­inn. Málið kom upp á síðum Dagens Nyheter í kjöl­farið á Metoo og var afleið­ing af þeirri umræðu. Sænska aka­dem­ían vann með styrkti og studdi mann sem erfitt er að líta á með öðrum hætti en í besta falli sem karl­rembu, kven­hat­ara og kven­kúg­ara og í versta falli sem nauð­gara þó ein­ungis ein kæra gegn Arnault sé ennþá til með­ferðar hjá lög­regl­unni. Inn í þetta bland­ast svo líka að Arnault borg­aði starfs­mönnum Forum-klúbbs­ins svört laun, ef hann borg­aði þeim þá, og var mikil óreiða í bók­haldi stað­ar­ins. Þeir sem báru ábyrgð á þess­ari sam­vinnu við Arnault, meðal ann­ars Engdahl og fyrr­ver­andi rit­ari Sænsku aka­dem­í­unnar, Sture Allen, sitja áfram í nefnd­inni og hafa náð að ýta fyrstu kon­unni úr rit­ara­stólnum eftir ein­ungis 3 ár.  Einn pistla­höf­undur kall­aði Engdahl og fylg­islið hans „grá­úlf­ana“ vegna þessa. 

Nið­ur­staðan er því sú að þeir sem báru ábyrgð á Arnault, sem er ein­hvers konar nútíma­leg útgáfa af flag­ar­anum og erki­melnum Vicomte de Valmont úr bók­inni Hættuleg kynni sem John Malkovich túlk­aði eft­ir­minni­lega í bíó­mynd á níunda ára­tugnum, sitja áfram og halda sínu á meðan Sara Danius, sem enga ábyrgð ber á honum, þarf að láta í minni pok­ann.  Þessi nið­ur­staða er svo bara birt­ing­ar­mynd mik­illar óánægju þess arms innan aka­dem­í­unnar sem Horace Engdahl fer fyrir með störf Söru Danius og hvernig hún hefur poppað upp rit­ara­starfið í nefnd­inni síð­ast­liðin ár, sam­kvæmt því sem komið hefur fram í sænskum fjöl­miðlum. 

Þessi kynd­bundna túlkun á stöð­unni kemur fram í máli sumra sem hafa tjáð sig um stöð­una í gær og í morgun, meðal ann­ars Per Wästberg sem situr í aka­dem­í­unni en hann telur að sú stað­reynd að „tveimur konum var fórnað“ sé „skammar­blettur“ á aka­dem­í­unni og verður að telj­ast afar ólík­legt að stríð­inu innan aka­dem­í­unnar sé hér með lokið þó Danius hafi kvatt.  Sápu­óperan í nóbels­nefnd­inni, eða bún­inga­dra­mað í anda Shakespe­ares, er því vænt­an­lega hvergi nærri á enda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár