Kenndu hvort öðru að treysta

Mæðginin María Sólrún og Magnús Maríuson standa að baki ADAM, sem er loka­kvik­mynd Alþjóð­legrar barna­kvik­mynda­há­tíðar í Reykja­vík 2018 og fer að því loknu í almennar sýn­ingar í Bíó Paradís. Hún leik­stýrði syni sínum sem fer með aðal­hlut­verk í mynd­inni. Hér segja þau frá því hvað þau hafa lært af hvort öðru og hvernig sam­starf þeirra skil­aði sér í ævin­týr­inu um ADAM.

Kenndu hvort öðru að treysta
Góð saman María Sólrún og Magnús við Balaton­vatn í fyrra­sumar, þar sem þau dvöldu við að skrifa hand­rit að næstu mynd, sem þau eru þegar komin með fram­leið­anda á. Mynd: Úr einkasafni

„Þegar Magnús hringdi í mig einn dag­inn frá Finn­landi og spurði hvort við ættum ekki að gera eina stutt­mynd saman þá stökk ég bara með út í ævin­týrið og stakk upp á að gera úr því mynd í fullri lengd, án þess að pæla hvort það væri skyn­sam­legt, hvort ég hefði tíma eða fjár­magn til þess. Tók áhættu sem maður þorir frekar þegar maður er yngri. En ég þakka Magnúsi fyrir að taka af skarið. Og afrakst­ur­inn af ævin­týr­inu var síðan ADAM.“

Þannig lýsir leik­stjór­inn og hand­rits­höf­und­ur­inn María Sólrún aðdrag­anda þess að hún og sonur hennar tóku ákvörðun um að gera í sam­ein­ingu kvik­mynd í fullri lengd. Sú ákvörðun varð upp­hafið að nokkuð löngu, per­sónu­legu og lær­dóms­ríku ferli fyrir þau bæði. Þau fram­leiddu mynd­ina saman, ásamt Jim Stark. Að verk­efn­inu komu nokkrir af nán­ustu aðstand­endum þeirra mæðgina, auk þess að þeirra eigið nærum­hverfi í Neukölln í Berlín er sögu­sviðið. Dóttir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár