Sigrún Bessadóttir starfar sem ritari hjá sendiráði Íslands í Finnlandi, en hún er með MA-próf í norrænum tungumálum frá háskólanum í Helsinki, með áherslu á þýðingar. Eiginmaður hennar er finnskur og saman eiga þau einn son, Emil, sem verður sex ára í haust. Hjónin eru bæði mjög sjónskert og notast við notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) til þess að lifa hefðbundu fjölskyldulífi.
„Fötlun á að vera aukaatriði í umræðu um foreldrahlutverk. Ég geng út frá því að þeir fötluðu einstaklingar, sem óska þess að verða foreldrar, viti alveg hvað þeir vilja eins og hver annar sem vill eignast börn. Samfélagið hefur oft efasemdir um hæfni fatlaðs fólks til þess að ala upp börn og elur þar með á fordómum og mismunun – jaðarsetur tiltekna hópa í samfélaginu og dæmir þá vanhæfa fyrirfram. Það að fólk þurfi aðstoð við að lifa daglegu lífi vegna fötlunar gerir það ekki að verri foreldrum – …
Athugasemdir