Grét mig í svefn, ein í Ástralíu á jólunum

Andrea Hauks­dóttir flaug yfir þveran hnöttinn til að eyða jólunum með svikulum kærasta.

 

„Einu sinni flaug ég til Ástralíu til að verja jólunum þar. Það var rosalega heitt, 42 stiga hiti. Jólin í Ástralíu eru bara dagdrykkja með stór­fjöl­skyldunni. Fólk grillar og drekkur sig blindfullt. Það eru fáar hefðir, þetta er bara fjölskyldu­partí. 

Þetta var mjög eftir­minnilegt. Ég átti kærasta í Ástralíu og var búin að ferðast til hans til að vera hjá honum yfir jólin og hitta alla stór­fjöl­skylduna hans. Svo annan í jólum komst ég að því að hann var að slá sér upp með annarri stelpu á meðan hann var að hitta mig. Ég grét mig í svefn annan í jólum, komin þvert yfir hnöttinn til að hitta hann. Ég vaknaði daginn eftir í 43 stiga hita og leið eins og ég væri í helvíti. 

Ég þraukaði í tvo mánuði úti í Ástralíu áður en ég sprakk. Sagði honum hvað ég vissi. Eftir það rakaði ég af mér hárið, sagði honum að éta skít og pantaði mér one way ticket til Taílands. Þar fór ég á fjögurra mánaða fyllirí. En ég er komin til Íslands og orðin edrú í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár