Kennari og nem­andi stíga fram Sigrún Sól var kenn­ari í skól­anum sem gagn­rýndi aðferðir eins kenn­ara sem hún hafði ekki séð áður. Við hlið hennar stendur Rósa, en kenn­ari gekk út úr útskrift­ar­verk­efni hennar, eftir að hafa boðið fram aðstoð sína, vegna þess að hún hafn­aði honum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Skelfilegar sögur“ úr Kvikmyndaskóla Íslands

Kvik­mynda­skóli Íslands hefur gjör­breytt lands­lag­inu í íslenskri kvik­mynda­gerð, enda hika nem­endur ekki við að greiða rán­dýr skóla­gjöldin til að láta drauma sína ræt­ast. Ungar konur sem hafa farið í gegnum leik­list­ar­námið segja hins vegar frá marka­leysi og óvið­eig­andi sam­skiptum við kenn­ara, aðgerð­ar­leysi stjórn­enda og karllægum kúltúr þar sem nem­endum var kennt að brjóst selja.

„Ég er heppin,“ segir Tanja Björk Ómars­dóttir, „af því að ég lenti ekki í neinu.“ Hún hefur varla sleppt orð­inu þegar hún segir fyndið að hún taki þannig til orða, hún sem var 22 ára gömul, nýbyrjuð í skól­anum og blaut á bak­við eyrun en með mikla drauma um leik­feril þegar kenn­ar­inn hennar, mið­aldra maður, bauð henni á bar­inn til þess að ræða brans­ann og fer­il­inn. Hún þáði boðið feg­ins hendi. „Ég var alveg græn, vissi ekk­ert um brans­ann og vildi þiggja góð ráð frá honum. Ég var svo ánægð með að hann væri að bjóð­ast til að hjálpa mér. Ég man að mér fannst skrítið að hann vildi fara yfir þetta á bar, seint að kvöldi, þar sem við værum bara tvö ein, en hugs­aði ekki mikið út í það, enda átti ég ekki von á neinu. Hann hafði alltaf verið næs og virt­ist vita um hvað hann væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár